Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 17
1. tafla. Stærð á Þrælagarði í fimm þversniðum. - Thickness and width ofthe Thrœlagar-
dur turf wall in five soil sections.
Nr. og nafn sniða Section no. Þykkt jarðvegs ofan á garði (cm) Soil thickness on top of turf wall (cm) Þykkt garðs (cm) Thickness of turf wall (cm) Breidd garðs (cm) Width of turf wall (cm)
1 - Syðririmi 27 31 213
2 — Rimaskarð 20 27
3 - Þrælasteinn 42 72 127
4 — Gilbotnar 32 22 230
5 — Kúaflóð 20 25
um kafla, taldi hann líklegt, að keldan
hafi verið gripheld til forna og því hafi
ekki þurft garð. Það er þó heldur vafa-
söm skýring.
Landamerkjabréfið frá 1456 (ís-
lenzkt fornbréfasafn 1899-1902) get-
ur aftur á móti um landamerkjagarð
milli Skálholts og Torfastaða. Hann á
að liggja fyrir austan Hrosshaga og
UPP að Klofnalækjabotnum, en
Klofnilækur á að renna fyrir austan
Miklaholt.
Ornefnið Klofnilækur er nú gleymt,
en ekki fer á milli mála, að átt er við
sama lækinn og Brynjúlfur lýsir hér að
framan. Örnefni er tengjast klofnun
Klukknagils hafa verið notuð allt fram
á síðustu öld. í landamerkjabréfum
fyrir Miklaholt (1888) og Spóastaði
(1886) er Klukknagil nefnt Klofnagil
og til eru Klofnagilsbotnar. Aftur á
móti eru nefndir Klukknagilsbotnar í
landamerkjabréfi Hrosshaga (1884) og
Klukkugil í landamerkjabréfi fyrir
Skálholt (1804). Klofnagilsnafnið er
að líkindum eldra, enda rökrétt nafn á
gili sem klofnar upp í tvær keldur, þar
sem önnur nefnist Klofnilækur.
STÆRÐ ÞRÆLAGARÐS
Til forna voru sérstök ákvæði um
stærð löggarða. í Jónsbók (1970, bls.
160) segir:
„En þat er löggarðr er .v. feta þykkr er
við jörð niðri, en þriggja ofan; hann
skal taka í öxl þeim manni af þrepi er
hann er hálfrar fjórðu álnar hár, ok þó
at fé hlaupi þann garð, þá bæti sá skaða
er þat fé á landnámslaust.“
Fræðimenn eru ekki sammála um
lengd lögalinar svo erfitt er að gefa
nákvæma tölu um hæð löggarðs. Fyrr
á öldum munu a.m.k. tvær mislangar
álnir hafa verið notaðar, 49 og 57 sm
(Gísli Gestsson 1969). í hverjum
faðmi eru þrjár álnir. Faðmur hefur
því verið á bilinu 150—170 cm. í dag
þætti slíkt góð girðingarhæð. Breidd
löggarðs hefur verið á bilinu 125 — 150
cm að neðan, en 75—90 cm að ofan.
Gera verður ráð fyrir, að upphaflega
hafi Þrælagarður ekki verið minni um
sig en löggarður.
Fróðlegt er að bera saman ástand
garðsins í dag og stærð löggarða.
Þrælagarður er nú víðast hvar um 20-
30 cm þykkur (1. tafla), en hefur áður
ekki verið undir 150 cm og er nú að-
eins sjötti hluti af upphaflegri þykkt.
Garðurinn hefur sigið út og breikkað.
Að meðaltali eru nú um 30 cm af
jarðvegi ofan á sjálfri garðhleðslunni
þó að garðurinn rísi sums staðar yfir
223