Náttúrufræðingurinn - 1986, Qupperneq 19
5. mynd. Þversnið af Þrælagarði í Syðririma. - Cross section of the Thrœlagardur turf
wall at Sydririmi.
öskulag úr Heklu, nefnt H-4, og er
geislakolsaldur þess um 4000 ár (Guð-
rún Larsen og Sigurður Þórarinsson
1978). Annað ljóst öskulag úr Heklu,
H—3 (geislakolsaldur um 2800 ár),
finnst nokkru ofar. Hin mikla þykkt
þess (18,5 cm) í Brattholti er áberandi.
Milli H-3 og H-4 eru þrjú fínsöndug,
svört öskulög. Um aldur þeirra og
uppruna er ekkert vitað. í sniðum á
Haukadalsheiði finnast 2—3 þessara
svörtu öskulaga og nefnir Guttormur
Sigbjarnarson (1969) þau h, i, og k.
Tvö þunn, grá öskulög eru einnig milli
H—3 og H-4. Ofan við H—3 eru tvö
svört lög og eitt þunnt, ljóst öskulag,
sem við vitum engin deili á. Rétt ofar
er 2 cm ljóst öskulag, fremur gróft,
sem við nefnum HB. Grófleiki lagsins
(kornin allt að 5 mm) gefur til kynna,
að það sé ættað úr nálægri eldstöð,
líklega Heklu. HB er mjög gott leiðar-
lag í Biskupstungum. Lagið er aðeins
um 2 cm við efstu bæi (Brattholt), en
þykknar verulega er neðar dregur í
sveitina og er um 7—8 cm í sniðum við
Þrælagarð. Lagið finnst ekki í sniðum
á Haukadalsheiði (Guttormur Sig-
bjarnarson 1969), en það gæti verið í
einu sniði rétt austan við Gullfoss
(Þorleifur Einarsson 1982). í Bratt-
holtssniðinu koma næst fyrir ofan HB
tvö þunn, svört öskulög, sem ekkert er
vitað um. Stuttu ofar er svonefnt
Landnámslag. Á Suðurlandi er það
tvílitt, grágrænt að ofan, en gráhvítt að
neðan og auðþekkt á útlitinu einu.
Landnámslagið er upprunið úr 42 km
langri gossprungu á Veiðivatnar-
eininni á Tungnaáröræfum (Guðrún
Larsen 1984). Engin bein aldurs-
ákvörðun á laginu hefur verið birt, en
margt bendir til þess að það hafi fallið
um 900 e. Kr. (Þorleifur Einarsson
1962, Sigurður Þórarinsson 1968,
Guðrún Larsen og Sigurður Þórarins-
son 1984). Rétt ofan við Landnáms-
lagið er þunnt, svart öskulag. Það er
annað hvort öskulagið sem Sigurður
Þórarinsson (1968) nefnir K—1000 eða
annað Kötlulag frá fyrri hluta 10.
aldar, sem Guðrún Larsen (1978)
nefnir K-R. Ljósa öskulagið H-1104
er 0,5 cm þykkt í Brattholti líkt og
225