Náttúrufræðingurinn - 1986, Qupperneq 46
BURÐARÞOL ÍSS
ísastafur var fyrrum til á hverjum bæ
við Þingvallavatn (9. mynd). Þegar
broddurinn fór niður úr ísnum í fyrsta
höggi var sagt að ísinn væri einhöggur
og vatnið einhöggt. Einhöggur ís er
varasamur og því ekki talinn mann-
gengur.
Þegar höggvið var þéttingsfast tví-
vegis, þ.e.a.s. aftur í sama farið og
broddurinn sprengdi niður úr ísnum
svo holan dignaði aðeins, var sagt að
ísinn væri tvíhöggur, vatnið tvíhöggt
og manngengt. Ef vætlaði ekki í hol-
una eftir þrjú röskleg högg, engir
aflraunaklækir viðhafðir, var ísinn tal-
inn hestheldur. Fimmtán cm ís (hálft
fet) er fær hesti með æki. Finnskir
bændur telja einnig að 15 cm þykkur ís
haldi hesti og æki.
Hvað þolir ísinn þungt farartæki?
Þetta er áleitin spurning sí og æ.
Þrjú atriði ráða:
A. Gerð og ástand íssins
B. Lengd og lögun farartækis
C. Hraði farartækis
A) Bláísinn (glærís) er traustasti
ísinn. Einföld þumalfingursregla segir:
Mæla skal ísþykktina í cm. Þá fæst, að
ísþykktin í öðru veldi sinnum 15 gefur
burðarþolið, þ.e.a.s. alheill og
óspunginn 5 cm ís bei; uppi 375 kg, 10
cm ís ber 1500 kg og 15 cm 3375 kg.
Hér verður að athuga rækilega, að
allur ís á ám og vötnum er meira og
minna sprunginn. Deila þarf því í með
tveimur og síðan þremur er ísinn
þykknar og nær 20 cm þykkt. Reynslan
er sú að 5 cm ís heldur uppi 180 kg, 10
cm 700 kg og 15 cm 1350 kg. Hér ber
enn fremur að athuga að reglan er lítils
virði nema atriðin B og C séu athuguð
jafnframt.
B) Langir sleðar og beltavagnar eru
öruggustu farartækin á ísum, því að
áríðandi er að dreifa þunganum. Allir
kannast við að á 3 cm ísi, sem stigið er
VATNASTÖNG
9. mynd. Vatnastöng og ísastafur. Vatna-
stöng er hentug þegar brestir eru komnir.
Einnig er hún hentug við smáar landvakir.
Meðan allt var óbrúað var vatnastöng not-
uð þegar smáárnar voru í flóði eða upp-
belgdar af grunnstingli. — Two types of ice
picks used by the local people.
niður úr í hverju spori, er unnt að
laumast um á skíðum. Kubbslegir bflar
henta illa á ísum. Hér skal stuðst við
finnska reynslu og rannsóknir (vatna-
leiðaeftirlit) varðandi umferð á ísi-
lögðum vötnum (2. tafla).
C) Hraði farartækis er veigamikill
252