Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 50
11. mynd. Skálabrekkutún, eftir miðjan maí 1973. — A hayfield at the farm Skálabrekka in late May, 1973. (MyndJphoto: Regína Sveinbjörnsdóttir). lagnet, búin til úr heimaspunnu togi, lögð undir ísinn. Pegar erlend net komu til sögunnar upp úr aldamótun- um, útrýmdu þau íslensku netunum. Dorgveiðin lagðist smátt og smátt af og er nú hætt með öllu a.m.k. um stundarsakir. Net eru lögð á vel þekktum miðum. Með skriðli er auðvelt að koma taug undir ísinn. Áður fyrr þurfti að höggva mörg göt (vakir) í ísinn í stað tveggja nú. Þá var farið strax út á ísinn er hann var manngengur og aðeins dráttartaug komið fyrir en engum netum. Afar- grönn timburspíra var notuð við að koma dráttarlínunni undir ísinn. Venjulega var tommuborð rist niður í l"xl" lista og þeir knýttir saman. Reynt var að hafa spíruna sem lengsta, 8 m eða lengri. Ekki veitti af, því að venjuleg netalengd er um 80 m. Götin á ísnum urðu æði mörg. Nú er öldin önnur. Dráttarlínu og síðan netum er komið fyrir í einni og sömu ferðinni út á ísinn. Fyrst er skriðill (12. mynd) sendur undir ísinn. Við hvert tog í línuna (12. mynd) fær- ist fjölin áfram um 30 til 50 cm, en stáloddurinn situr fastur í ísnum á meðan. Þegar aftur er slakað á nær flatjárnsarmur skjótt lóðréttri stöðu á ný og stáloddur hefur þá færst áfram. Þannig koll af kolli, og skriðill nær skriði, allt eftir hæfni skriðils og jafn- framt lipurð og lagni manns. Um skriðilinn er skemmtileg þróunarsaga, 256

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.