Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 56
1. mynd. Eldingar umhverfis gosmökk úr Surtsey 1. desember 1963. Myndin er tekin frá
Heimaey á 90 sekúndum. Efri brún myndarinnar er um 6 km yfir Surtsey. - Lightning
around the eruptive cloud of Surtsey, December Ist 1963. The exposure time was 90
seconds. (Mynd/photo Sigurgeir Jónasson.)
ORSÖK ELDINGA VIÐ SURTSEY
Rannsóknir á eldingum hafa nær
ekkert verið stundaðar hér á landi,
enda komu þessi raffyrirbæri í
Surtseyjargosi flatt upp á menn. Fyrir
tilstuðlan Paul Bauers, sérstaks vel-
unnara Surtseyjar, kom hingað hópur
bandarískra vísindamanna með fjög-
urra hreyfla flugvél hlaðna vísinda-
tækjum til rannsókna á gosmekkinum.
Þeir dvöldu hér eina viku og gerðu
ýmsar mælingar umhverfis mökkinn,
en gátu ekki farið nægilega nærri til að
greina atburði í smærri dráttum. Þar
sem ég hafði fengist við rannsóknir á
eldingum á námsárum mínum í Þýska-
landi, fékk Þorbjörn Sigurgeirsson
mig til að aðstoða leiðangurinn, og
lyktaði því máli svo, að ég fékk að láni
nauðsynlegustu tæki til að halda áfram
mælingum, önnur en farkostinn, sem
flaug til síns heima. Ég varð því að
fara um siglandi og sjóveikur, oftast á
skipum Landhelgisgæslunnar, sem var
mjög hjálpleg við mælingar, en nota-
drýgstur reyndist þó lítill bátur, sem
262