Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1986, Side 57

Náttúrufræðingurinn - 1986, Side 57
2. mynd. Eldingar í gosmekki Surtseyjar að kvöldi 4. febrúar 1964. Vegna ösku og gufu sést aðeins hluti hverrar eldingar í mekkinum. Myndin er teiknuð eftir röð mynda, sem teknar voru með reglulegu millibili (6 myndir á mfnútu) frá sólsetri til miðnættis. — Lightning in the eruptive cloud of Surtsey in the evening of February the 4th 1964. Due to tephra and steam only a part of each lightning can be seen. This drawing was made from a sequence of photographs taken at regular intervals (6 per minute) between sunset and midnight. gaf sér tíma frá veiðum, þar sem hann hafði misst veiðarfærin vegna land- helgisbrota. Þessar athuganir voru mikið áhugamál veðurfræðinga og eðl- isfræðinga, sem fást við rannsóknir á þrumuveðrum og hvirfilbyljum. Líf- fræðingar sýndu einnig mikinn áhuga. Margir þeirra telja líklegt, að líf hafi fyrst kviknað í eins konar sjávarsúpu ólífrænna efna, sem, fyrir tilverknað ytri orkugjafa, e.t.v. hraunglóðar eða eldingar, hafi náð að mynda orkurík lífræn efnasambönd. Orð biblíunnar, „verði ljós“ gætu þar með öðlast nýjan og víðtækari eðlisfræðilegan skilning. Til að skilja, hvernig á eldingum stóð, var okkur umhugað að kanna dreif- ingu hleðslna í mekkinum og grafast fyrir um, hvar þær skildust að (And- erson o.fl. 1965; Sveinbjörn Björnsson 1966; Sveinbjörn Björnsson o.fl. 1967; Blanchard & Sveinbjörn Björnsson 1967). Rafsviðsmælingar sýndu, að mökkurinn kom rafmagnaður upp úr gígnum. Jákvæðar hleðslur fylgdu gufu en neikvæðar hleðslur öskunni. 263

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.