Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 60

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 60
hann var kominn fyrir það, heldur hafði um þann tíma og í því sama takmarki hlaðist saman og hrúgast hvað ofan á annað, þar í afhallandi farveg hjer um 70 faðma á breidd, en 20 faðma á dýpt, sem sjáanlegt verður til heimsins enda, ef þar verður ei á önnur umbreyting. Holtsá og Fjaðará hlupu fram yfir þær stíflur, er það nýja hraun hafði gjört þeim, og í mestu flugferð og boðagangi kæfðu nú eldinn, er rumlandi og renn- andi var í árfarvegnum, og hljóp svo fram og ofan af áður tjeðri dýngju með fossum og iðukasti. Vatn þetta var svo mikið, að áin varð hreint ófær á hestum allan daginn eptir undan klaustrinu. Fórum við svo frá kirkjunni glaðværari heim, en jeg frá geti sagt og þökkuðum guði fyrir svo ásjáanlega vernd og frelsi, sem hann hafði veitt oss og sínu húsi. Já, allir, sem þetta almættisverk sjá og heyra af því sagt, aldir og óborn- ir, prísi og víðfrægi hans háleita nafn. Frá þessum sama degi grandaði ei eldurinn stórvægis minni kirkjusókn á þennan veg ..." Þetta er einn merkasti texti úr ís- lenskri eldfjallasögu og hann er yfir- leitt lesinn, eins og höfundurinn ætlast til, með guðrækilegu hugarfari og „rjettilegri andakt“. í þetta sinn leyfum við okkur að skoða hann frá eðlisfræðilegum sjónarhóli. Það er einkum tvennt, sem við rekum augun í. Hraunið stíflar ár og þaðan stíga hvítir þokumok’kar. Þykka hitasvælu og þoku leggur af eldinum niður far- veg Skaftár og henni fylgja skruggur og eldingar kippum saman. í ljósi reynslunnar frá Surtsey liggur nærri að ætla, að það séu átök höfuðskepnanna vatns og elds sem þessu valda. í öðru lagi er það hinn dýrðlegi kraptur al- mættisins, sem stöðvar hraunstraum- inn og hleypir Holtsá og Fjaðará úr böndum, svo að þær „í mestu flugferð og boðagangi kæfðu nú eldinn, er rumlandi og rennandi var í árfarvegn- um . . . “. Það rýrir ekki trú okkar á mátt bænarinnar og guðlega forsjá, þótt við viljum nú skilja, hvernig al- mættið bar sig að og lét vatn kæfa eldinn. Eyja-menn héldu líka sína Eld- messu en fengu í fyrstu aðeins eldskírn að launum. Ekki vitum við hverju al- mættið gæti hafa hvíslað að Þorbirni Sigurgeirssyni, en strax á dögum Surtseyjargossins var hann farinn að fá hugmyndir í þá átt, sem síðar varð að veruleika á Heimaey 1973. VATN RÍFUR BERG Sú reynsla, sem fékkst við hraunkælingu í Heimaeyjargosi, hefur nú verið nýtt til vinnslu hita úr hrauninu (Þorbjörn Sigurgeirsson 1982). Hún hefur einnig ýtt undir mun víðtækari skilning á því, hvernig varmaskiptum milli vatns og bergs gæti verið háttað í varmagjöfum jarð- hitakerfa. Þar hafa menn jafnan átt í erfiðleikum að skýra hið feiknarlega varmaafl, er jarðhitakerfi skila. Við kælingu með venjulegum hætti þykknar veggurinn milli vatns og glóð- ar svo á fáum árum, að glóðin má heita einangruð frá umhverfi sínu. Galdurinn liggur hins vegar í því, að vatnið veldur slíkum samdrætti í berg- inu við kælingu, að það rifnar og springur í kubba, og vatnið smýgur um sprungur svo nærri glóðinni, að þar skilur aðeins á milli þunnt, ósprungið lag af heitu storkubergi. Segja má að vatnið éti sig inn í bergið eftir sprung- um og sæki varmann án þess að varma- leiðing komi þar mikið við sögu (Helgi Björnsson o.fl. 1982). Gunnar Böðv- arsson (1951) var kominn á þessa skoðun í heilabrotum sínum um varmagjafa Hengilssvæðisins, þar sem hann segir: 266

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.