Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 10
ræða. Þetta verður ljóst með saman-
burði við hæð annarra fjörumarka í
nágrenni þessara staða. Hin lægri og
staðbundnu fjörumörk eru ýmist uppi
undir skriðum eða klettabeltum, sem
bendir til þess að hærri (efstu) fjöru-
mörk eru nú annað hvort grafin undir
skriðum eða þau náðu ekki að mynd-
ast.
Neðan við efstu fjörumörk eru um-
merki lægri og jafnframt yngri sjávar-
stöðu. Þessi lægri fjörumörk, sem yfir-
leitt eru ógreinilegri, vitna um afflæði
sjávar frá efstu fjörumörkum. Ekki var
þetta afflæði jafnt og stöðugt því að
greinileg lægri fjörumörk eru til dæmis
í 27 m y.s. í Breiðdal, 35 m y.s. í
Fáskrúðsfirði og 41 m y.s. í Reyðar-
firði.
Þrátt fyrir að mælipunktar fjöru-
marka séu ekki jafnt dreifðir um rann-
sóknarsvæðið hafa fengist áreiðanleg-
ar og mikilsverðar upplýsingar um
hæð efstu fjörumarka á Austfjörðum.
Hæð fjörumarka var mæld á 168 stöð-
um (4. mynd), og reyndist hún vera á
bilinu 13-57 m y.s. Flestir mæli-
punktanna eða 68 % eru á bilinu 30-
47 m y.s, en meðalhæð allra mældra
fjörumarka á Austfjörðum er
38 m y.s. Dreifing mæliniðurstaðna á
4. mynd er ekki algerlega jöfn og
sýna einstakir toppar í ferli myndar-
innar að ákveðnar hæðir fjörumarka
eru algengari en aðrar.
Hæð efstu fjörumarka er nokkuð
breytileg frá einu svæði til annars. A
öllum svæðunum eru gefnar upp tvær
eða þrjár hæðir efstu fjörumarka. Mis-
munur þessara hæða táknar afflæði
sjávar um það leyti er jöklar hörfuðu
inn firðina frá ystu jökulgörðunum.
Hærri talan sýnir hæð fjörumarka ut-
an við jökulgarðana en sú lægri hæð
fjörumarka innan við þá.
A 1. mynd eru merktir jökulgarðar
sem máli skipta og tengdir eru afflæði
sjávar og hörfun jökla á Austfjörðum.
Jökulgarðarnir sýna að sporður skrið-
jöklanna var kyrrstæður um nokkurt
skeið á þeim tíma er garðarnir mynd-
uðust. Ekki er eingöngu stuðst við
eiginlega endagarða þegar lega jökl-
anna er ákvörðuð, heldur einnig við
landform sem hafa myndast nærri eða
í tengslum við sporð þeirra. Landform
af þessu tagi eru til dæmis jaðargarð-
ar, jaðarhjallar og jaðarrásir. Önnur
og mikilvæg rök fyrir legu jökla er
skyndileg og greinileg lækkun á hæð
efstu fjörumarka innan tiltölulega lít-
ils svæðis.
NIÐURSTÖÐUR
Eins og fram kemur hér að ofan er
hæð efstu fjörumarka á Austfjörðum
nokkuð breytileg, bæði milli einstakra
fjarða svo og í hverjum firði. Hæðar-
munur efstu fjörumarka í fjörðunum
er tengdur útbreiðslu og hörfun skrið-
jöklanna, enda er hæðarmunurinn
greinilegastur við jökulgarðana.
Vegna þessa mismunar verða allar
niðurstöður bæði skýrari og aðgengi-
legri, þegar fjallað er sérstaklega um
hæð fjörumarka og útbreiðslu jökla í
hverjum firði fyrir sig.
Hornafjörður
Fjörumörk undir Viðborðsfjalli eru
í 28 m y.s. en í 45 m y.s. í mynni
Laxárdals og Bergárdals. Þrátt fyrir
að enginn forn jökulgarður hafi fund-
ist á þessu svæði liggur beinast við að
ætla, að nokkur aldursmunur sé á
sjávarborðsmenjum austan og vestan
Hornafjarðar. Þessi hæðar- og aldurs-
munur efstu fjörumarka verður best
skýrður á þann veg, að við myndun
þeirra efri hafi jökull náð suður með
Viðborðsfjalli og út í Hornafjörð.
Samfara hörfun þessa jökuls lækkaði
sjávarborð og hafði fallið um 17 m
64