Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 27
Olafur Arnalds Uppgræðsla: hugtök, markmið og árangur INNGANGUR í fáum ríkjum heims hefur oröið til- tölulega jafn mikil jarðvegseyðing og á Islandi. Talið er að um fjórar millj- ónir hektara gróðurlendis hafi eyðst frá því að landið var numið (Ingvi Þorsteinsson 1978). Stórfellt verkefni er því framundan við að klæða landið gróðri á ný. Við rannsóknir tengdar uppgræðslu hefur fram til þessa eink- um verið lögð áhersla á uppgræðslu með áburði og grasfræi (Sturla Frið- riksson og Jóhann Pálsson 1970, Sturla Friðriksson 1960) og heppilega grasstofna (Andrés Arnalds o.fl. 1978, Áslaug Helgadóttir og Þorsteinn Tómasson 1984). Hér á landi hafa vangróin svæði fyrst og fremst verið grædd upp með því að takmarka beit og með friðun. Á undanförnum árum hafa viðhorf til landgræðslu breyst víða erlendis, ekki síst vegna tilrauna og rannsókna við geysistórar yfirborðsnámur í vest- urfylkjum Bandaríkjanna og á Bret- landi, svo og í tengslum við lagningu olíuleiðslna, m.a. þvert yfir Alaska. í Bandaríkjunum gilda nú mjög strang- ar reglur um að skila skuli landi, sem raskast við námugröft, í sambærilegu ástandi og það var áður en námugröft- ur hófst og er þá miðað við fram- leiðslugetu landsins, fagurfræðileg sjónarmið og skilyrði fyrir endurnýjað dýralíf (Schaller og Sutton 1978). Far- ið er að greina betur en áður hefur verið gert á milli mismunandi mark- miða sem stefnt er að með land- græðsluaðgerðum, jafnframt því sem aðferðunum hefur fjölgað. Þá hafa hugtök í þessari umfjöllun verið betur skilgreind. Hér á landi eru áherslur einnig að breytast og í rannsóknum er innlendum tegundum meiri gaumur gefinn en áður. I þessari grein er fjallað um ýmis hugtök er lúta að landgræðslu og rædd eru mismunandi markmið með upp- græðslu og endurheimt vistkerfa á Is- landi. Vonast er til að greinin verði til þess að auka umræðu um þessi mál, ýta undir nauðsynlega orðmyndun og stuðla að betri skilningi á hugtökum þeim sem notuð eru. HUGTÖK Orðin uppgræðsla, landgræðsla og endurgræðsla hafa öll verið notuð um sáningu og áburðargjöf. Líklega fer best á því að uppgrœðsla tákni það að þekja ógróið land gróðri og er það þá sömu merkingar og enska orðið „revegetation". Orðin uppgræðsla og endurgræðsla hafa hingað til verið notuð samhliða og verður því haldið hér. Líta má á orðið landgrœðslu sem víðara samheiti sem felur í sér hvers Náttúrufræðingurinn 58 (2). bls. 81-85, 1988. 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.