Náttúrufræðingurinn - 1988, Blaðsíða 28
kyns landgræðsluaðgerðir. Til land-
græðslu telst þá t.d. bygging garða til
varnar gegn sandfoki, hagabætur,
verndun gróðurs, t.d. með ítölu, auk
uppgræðslu.
Tilfinnanlega hefur vantað íslenskt
orð eða orðsamband sömu merkingar
og enska hugtakið „restoratiorí'. Það
er dregið af latneska orðinu „restaur-
are“ sem þýðir að skila aftur til fyrra
horfs. Merking orðsins „restoration“
er, samkvæmt orðabók Arnar og Ör-
lygs, endurreisn, það að skila, endur-
heimt, eða viðgerð. Samkvæmt orða-
bók Websters („Collegiata Diction-
ary“) er merking orðsins: „bringing
back to former position or condition",
eða færa aftur í fyrri stöðu eða ástand.
Orðið felur ekki aðeins í sér að þekja
land með gróðri, heldur einnig að
færa vistkerfið, gróður, jarðveg, dýra-
líf o.fl., í upprunalegt horf. Haft var
samband við íslenska málstöð þegar
reynt var að finna heppilegt íslenskt
orð. Halldór Halldórsson prófessor
stakk upp á orðunum fullrækt, alrækt
ogfullvist, en áður hafði verið stungið
upp á orðinu vistheimt. Ástæða er til
að nefna alla þessa möguleika hér.
Orðin fullrækt og alrækt hafa marga
kosti en eru nokkuð keimlík orðum
sem tengjast ræktun, t.d. jarðrækt,
sem felur yfirleitt í sér röskun á nátt-
úrulegu gróðurfari. Þessi orð eru því
e.t.v. ekki heppileg. Eftir miklar
vangaveltur var ákveðið að leggja hér
til að nota íslenska orðið vistheimt
sem þýðingu á „restoration". Orðið
vist fer vel í samsetningum. Orðið
vistheimt nær merkingu erlenda hug-
taksins ágætlega og betur en fullvist.
Tíminn verður að leiða í ljós hvort
það verður tekið til almennra nota
eða hvort annað og betra orð finnst.
Ingvi Þorsteinsson (1978) hefur notað
orðasambandið endurheimt landgæða
í svipaðri merkingu og vistheimt, en
þó einkum með tilliti til framleiðslu-
getu gróðurlenda. Það fer vel á því að
nota endurheimt vistkerfis ásamt vist-
heimt til að auka fjölbreytni í orða-
vali.
Mjög mikill munur getur verið á
uppgræðslu og vistheimt eins og síðar
verður vikið að. Þessum hugtökum er
oft ruglað saman og má líklega rekja
það til þess að þau hafa ekki verið
nógu vel skilgreind og að heppilegt
orð hefur vantað í íslensku um vist-
heimt. Erfitt er raunar að skilgreina
vistheimt land svo vel sé. Væntanlega
verður að taka tillit til gróðurþekju og
fjölda innlendra tegunda, jarðvegs-
uppbyggingar, dýralífs, framleiðni
vistkerfisins og fagurfræðilegra sjónar-
miða. Bradshaw og Chadwick (1980)
töldu land vera vistheimt þegar fyrra
hagnýtu og líffræðilegu gildi þess hef-
ur verið náð á ný eftir röskun.
MARKMIÐ UPPGRÆÐSLU OG
MAT Á ÁRANGRI
Markmið uppræðslu geta verið
margvísleg og hér á eftir er gerð til-
raun til að skilja á milli þeirra helstu
miðað við íslenskar aðstæður:
1. Uppgræðsla í kjölfar hvers kyns
rasks.
2. Uppgræðsla vegna fagurfræðilegra
sjónarmiða.
3. Uppgræðsla til að stöðva sandfok.
4. Uppgræðsla til að hefta jarðvegs-
eyðingu.
5. Uppgræðsla til framleiðslu fóðurs
(ræktun).
6. Uppgræðsla sem hluti af vistheimt.
Með raski í fyrsta lið er átt við
vegagerð og aðra mannvirkjagerð,
skemmdir vegna aksturs utan vega
o.s.frv., en einnig tjón af völdum jarð-
vegseyðingar. í hvert skipti sem tekið
82