Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 1988, Síða 30
Talið er að flatarmál örfoka lands á íslandi sé um fjórar milljónir hektara (Ingvi Þorsteinsson 1978) eða um 40% af flatarmáli landsins. Vegna þess hve gríðarlega stórt svæði er um að ræða er augljóst að ekki er hægt að beita mjög kostnaðarsömum aðgerðum við endurheimt þeirra. Skortur á rann- sóknum hefur og háð árangursríkri vistheimt. Þetta á ekki aðeins við um Island, heldur einnig nágrannalöndin. Undanfarin ár hefur athygli vísinda- manna beinst æ meir að því að nota tegundir sem fyrir eru á hverju svæði (,,native“) til uppgræðslu. Má þar nefna tilraunir ýmissa vísindamanna í Alaska (t.d. Chapin og Chapin 1980). Einnig hafa verið reyndar ýmsar aðrar aðferðir sem miða meir að vistheimt en beinlínis uppgræðslu einni. Þar á meðal er blöndun mós við ólífrænt raskað yfirborð og aðgerðir sem miða að því að efla örverulíf í jarðveginum. Þá geta belgjurtir eins og smári og lúpína aukið niturframboð (köfnunar- efni) í jarðveginum og búið í haginn fyrir annan gróður. Vaxandi áhersla er nú hérlendis lögð á rannsóknir á niturbindandi tegundum (Andrés Arnalds 1986) sem og notkun inn- lendra tegunda til landgræðslu. Framvinda gróðurs á norðurslóðum er hæg, borin saman við heitari lönd, og því taka rannsóknir á henni mjög langan tíma. Þekking á slíku er þó e.t.v. forsenda notkunar ýmissa inn- lendra plöntutegunda til uppgræðslu (Johnson og Van Cleve 1976). Fram- vinda hefur nokkuð verið rannsökuð hérlendis og má þar nefna rannsóknir Elínar Gunnlaugsdóttur (1985), Ey- þórs Einarssonar (1970), Harðar Kristinssonar (1987) og Sturlu Frið- rikssonar (1975). En betur má ef duga skal. Vonandi verða rannsóknir á sviði landgræðslu efldar að mun í ná- inni framtíð svo takast megi að endur- heimta íslensk vistkerfi á sem hag- kvæmastan hátt. ÞAKKARORÐ Höfundur þakkar Sigurði Jónssyni, starfs- manni íslenskrar málstöðvar og prófessor Halldóri Halldórssyni fyrir orðasmíð, einnig Asu L. Aradóttur og Andrési Arn- alds fyrir ábendingar við samningu þessar- ar ritgerðar. HEIMILDIR Andrés Arnalds 1986. Belgjurtir til land- græðslu. í Nýting belgjurta á íslandi. (ritstj. Áslaug Helgadóttir). Fjölrit Rala 121. 95-108. Andrés Arnalds, Þorvaldur Örn Árnason, Þorgeir Lawrence og Björn Sigur- björnsson 1978. Grass variety trials for reclamation and erosion control. Fjöl- rít Rala 37. 52 bls. Áslaug Helgadóttir og Þorsteinn Tómas- son 1984. Tegundir og stofnar til upp- græðslu. Ráðunautafundir B.í. og Rala 1984. 130-142. Bradshaw, A.D. og M.J. Chadwick 1980. The Restoration of Land: the Ecology and Reclamation of Derelict and Degraded land. Blackwell, Oxford. 317 bls. Chapin, F.S. III. og M.C. Chapin 1980. Revegetation of an arctic disturbed site by native tundra species. Journal of Applied Ecology 17. 449-456. Elín Gunnlaugsdóttir 1985. Composition and dynamical status of heathland communities in Iceland in relation to recovery measures. Acta Phytogeogra- phica Suecica 75. 84 bls. Eyþór Einarsson 1970. Plant ecology and succession in some nunataks in the Vatnajökull glacier in South-East Ice- Iand. Ecology and Conservation 1. 247-256. Hákon Aðalsteinsson 1986. Vatnsaflsvirkj- anir og vötn. Náttúrufræðingurinn 56. 109-131. Hörður Kristinsson 1986. Colonization and succession on lava in Iceland. í Restoration and vegetation succession in circumpolar lands. Program & 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.