Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
127
Þorleifur Einarsson:
Aldursákvarðanir á fornskeljum
Brúará við Spóastaði í Biskupstungum (18)
55 m y. s.
(Mytilus edulis, Zirphaea crispata, Saxicava
arctica var. rugosa)
9930 ± 190 (T-362, 1963)
Hellisholtalækur í Hrunamannalnejjpi (17)
75 m y. s.
(Mytilus edulis)
9580 ± 140 (U-416, 1964)
9800 ± 150 (U-417, 1964)
Reykjavíkurflugvöllur (2)
13 m y. s.
(Pccten islandicus)
9940 ± 260 (U-413, 1964)
10450 ± 160 (U-414, 1964)
10230 ± 190 (U-415, 1964)
10310 ± 260 (U-412, 1964)
Víða sjást hér á landi á láglendi menjar hærri sjávarstöðu. Eru
þetta einkum brimþrep, malar- og hnullungakambar, malarhjallar
(fornir malarbakkar) og malar-, sand- og leirlög (deigulmór). í
sjávarsetinu, einkum í leirlögunum, finnast víða leifar sjávardýra,
einkum skelja og kuðunga.
í greinarkorni þessu verður fyrst gerð nokkur grein fyrir orsök-
um sjávarstöðubreytinga hér við land frá því að jökla síðustu ís-
aldar leysti og franr á okkar daga. Síðan verður rætt nokkuð um
tímasetningu hæstu fjörumarka og raktar skoðanir og niðurstöður
ýmissa vísindamanna um aldur þeirra. Loks verður greint frá ald-
ursákvörðunum á sjóskeljum, senr lifðu hér við land, er sjávarsetið
var að hlaðast upp. Aldursákvarðanirnar hafa verið gerðar með
svokallaðri C14-aðferð.
Orsakir sjávarstöðubreytinganna er einkum tvenns konar. Á síð-