Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 8

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 8
NÁ TTÚRUFRÆÐINGURINN 166 vor fer nýtt blað að vaxa við grunn gamla blaðsins, sem að lokurn rifnar af; þarinn skiptir um blað. Þöngull- inn er sívalur, eða stundum flatvax- inn ofantil og getur orðið allt að 60 cm langur. Blaðkan 50—200 cm löng. Er öll jurtin oft 1—3 m löng, dökk- ólífubrún á lit. Kerlingareyra (Laminaria hyperbo- rea) er nrjög svipað hrossaþara, en venjulega mun stórvaxnara og gróf- ara, allt að 5 m langt. Hin marg- klofna, breiða blaðka er allmiklu styttri en stöngullinn og líkist þarinn pálmatré að vaxtarlagi. Þöngullinn sérlega slímugur og sleipur, gildastur neðst. Tært slím vætlar út á þver- sneið. Um stórstraumsfjöru stendur oft efsti lrluti þörungsins upp úr sjón- unr og lyftir þá einnig neðsta hluta blöðkunnar upp úr, svo það er líkt og mörg eyru séu á sveimi. Kemur nafn- ið kerlingareyra e. t. v. af því. Beltis- þari og nraríukjarni eru líka stórvaxn- ari en auðþekktir frá hinum fyrr- nefndu á því, að þeir líkjast belti, þ. e. blaðkan er löng og heil. Beltisþari (Laminaria saccharina). Þöngull beltisþara getur orðið um 1 m á lengd og blaðkan allt að 2 m löng og 10—50 cm breið, svo þetta er allvænt belti. Miðbik blöðkunnar er þykkt og leður- kennt eftir endilöngu og yfirborðið óslétt með smálægðum og listum á milli. Jaðrarnir þynmi og bylgjóttir. Fjöruhestar eta neðsta hluta blöðkunnar með græðgi, en sá hluti er einmitt yngstur, mýkst- ur og næringarmestur. Norðmenn kalla beltisþarann „sykurþara“ vegna þess, að ef blaðkan þornar, smitar út vökva, er sezt utan á sem hvítt, sætt duft. Beltisþari hefur verið hagnýttur í sprengiefna- iðnaði og við framleiðslu gervilakks og gerviharpix. Sömuleiðis framleitt úr honum milt hægðalyf og sykurefni handa sykursýkis- sjúklingum í stað venjulegs sykurs. 3. mynd. Kerlingareyra og söl (neðan til vinstri).

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.