Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 16

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 16
174 N Á T T Ú R U F R Æ Ð1 N G U RIN N yrkja. Er ekki ólíklegt, að Danir hafi flutt villilauk til Bessastaða meðan liöfuðsmenn sátu þar. Garðyrkja var örugglega stunduð á Bessastöðum á 18. öld og sennilega miklu fyrr. í Skriðu voru gerð- ar garðyrkjutilraunir á árunum 1820—1830. Stendur þar elzti trjá- garður á íslandi og rnunu elztu reyniviðirnir í honum vera gróð- ursettir einmitt á árunum 1820—1830. Getur villilaukur hafa verið fluttur þangað fyrir löngu. — Getið er um laukagarða til forna, en fleiri lauktegundir geta hafa verið ræktaðar þar. Villilaukur hefur a. m. k. vaxið á íslandi í hartnær tvær aldir samfleytt. Óvíst virðist um framtíð hans vegna mikilla ræktunarframkvæmda nú á tímum. Þyrfti raunar að friða blett eða bletti, þar sem hann vex. Jón Jónsson: Bæli. Fornar eldstöðvar í Norðurárdal Ef farið er sem leið liggur norður í land um Holtavörðuheiði, er ekið um sléttar grundir hjá Dalsmynni. Dalurinn er þar all breiður og fjöllin báðum megin að mestu úr basalti, sem myndað er, að því er vitað er, á tertier, en líparítfjöllin Baula og Litla Baula gnæfa vestan dalsins og stinga mjög í stúf við basaltið. Skammt norðan við Dalsmynni verða fyrir manni all mikil hólahrúgöld í miðjum dal (1. mynd), og liggur vegurinn um þau austanverð og á kafla svo að segja alveg í árbakkanum. Frá Hreimsstöðum loka þessir hólar útsýni niður dalinn. Þeir eru að mestu vaxnir mosa að norðan, en sunnan í þeim eru grasi og lyngi grónar lautir og hvammar. Hólar þessir heita Bæli en voru samkvæmt Árbók Ferðafélags íslands 1953 áður nefndir Arnarbæli. Ekki þarf að nema staðar við Bæli til þess að gera sér það ljóst, að þessir hólar eiga sér aðra myndunarsögu en landið báðum megin við þá, austan ár og vestan. Hólarnir eru úr bólstrabergi og bergi, sem e. t. v. mætti nefna bólstrabrecciu, en það er berg, sem saman-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.