Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 20

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 20
178 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN kuðungsins með all-Jjéttstæðum og áberandi, jafnhliða þvergárum, og eru hverjir 2 samliggjandi gárar misgrófir að minnsta kosti á 5 neðri vindingun- um. Langrákir eru vel greinilegar með berum augum og afar þéttstæðar. Tegundin getur verið allbreytileg að því er snertir gerð skeljarinnar, og hafa nokkur afbrigði af henni verið skráð. T. d. hefur eintakið af Síðu- grunni miklu odddregnari hyrnu en meðfylgjandi textamynd sýnir; en sú mynd er teiknuð eftir eintaki, er náð- ist í Hasvig í Norður-Noregi. Bylgjunatinn finnst víða í austan- verðu Norður-Atlantshafi, allt norðan frá Svalbarða og suður um Grænhöfða í Afríku á 90—1900 metra dýpi. Teg- 1. mynd. Bylgjunati (Troschelia undin ætti því að geta lifað góðu líli bernicensis). (Úr G. O. Sars). vjg strendur íslands bæði í köldum sjó og hlýjum. Hin tegundin er samloka, er telst til jafntönnunga. I 2. útgáfu af Skeldýrafánu íslands er nafn þessarar skeljar tilfært neðanmáls á bls. 32. Sökum þess, hve prentun bókarinnar var komin langt á veg, þegar skelin fannst, var ekki unnt að lýsa tegundinni né birta mynd af henni. Eins og Skeldýrafánan ber með sér, þá telst umrædd tegund til hnytluættar og til sömu ættkvíslar og gljá- hnytlan okkar. Hnotskelin (Nucula delphinodonta Migh.), eins og ég hef kallað hana, fannst í görnum úr ýsu, sem aflaðist í Faxaflóa 3. febrúar 1964. Á hve miklu dýpi er ekki vitað. Aðeins eitt eintak fannst. Fljótt á litið minnir hnotskelin á smá- vaxna gljáhnytlu. Skeljarnar eru mjög kúpt- ar, hálfhnattlaga (samluktar), gulbrúnar að lit, sléttar og lremur lítið gljáandi. Nefið er stórt, framstætt. Fremri bakrönd löng, tengd kviðröndinni í óslitnum boga. Aftari bakrönd rnjög stutt, nærri lárétt og mynd- 2. mynd. Hnotskel. (Nu- cula delphinodonta). Mik- ið stækkuð. (Úr G. O. Sars).

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.