Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 38
196
NÁTTÚRUT'RÆÐIN GURINN
í skógræktargirðingunni að Skógum er mikil grózka eftir 12 ára
friðun. Þar er allt vafið í loðgresi (Holcus), blágresi, geithvönn,
stórvöxnum undafíflum, brönugrösum, stúfu o. fl ltlómgresi. Alls
sá ég um 100 tegundir villijurta í girta reitnum ofan við skólann.
Nemendur hafa, undir forystu Jóns Jóseps Jóhannessonar o. fl.
kennara, gróðursett þarna mikið af birki, greni, furu o. fl. tegund-
um og eru blómlegir birkilundir að vaxa upp í brekkunni. Páska-
hretið 1963 drap flestar grenihríslurnar. Ingólfur Daviðsson.
Skógarleifar i Hrolleifsdal.
Skagafjörður er vanalega skóglaus talinn. Fáeinar birkihríslur
hafa fundizt í Tindastóli og lítilfjörlegar kjarrleifar fram í dölurn.
Lengst mun skógur hafa haldizt í útsveitum, e. t. v. af því að þar
er snjósælt. Sigurður, skógarvörður í Varmahlíð, kvað helztu skógar-
leifarnar vera úti í Hrolleifsdal og fylgdi mér þangað einn sunnudag.
Upp af Sléttuhlíð, við utanverðan Skagafjörð að austanverðu,
gengur Hrolleifsdalur, grösugur vel líkt og nágrannabyggðin Fljót.
Ærið mun vera snjóþungt á vetrum og hætt við snjóskriðum. Mikið
ber á firnungi o. fl. snjóhéraðsjurtum og bæði hvítur og rauður
svarðarmosi virtust algengir. í Geirmundarhólum um miðjan dal-
inn austanverðan er lágt birkikjarr á töluverðu svæði. Kjarrið er
greinilega bælt af snjóþyngslum og er að jafnaði aðeins hnéhátt —
mittishátt, en þó á blettum um 2 m á hæð. Nokkrar gulvíðishríslur
vaxa innan um kjarrið og talsvert er um vöxtulegan eini. Varla
háir beit Jsessu kjarri lengur, fé mun hér aðeins ganga á sumrin,
Girðing mundi tæpast standa vegna fannfergis og snjóskriðna. DaL
urinn hefur lengi verið í eyði, en við mynnið standa bæirnii
Bræðraá og Skálá. En sumarfagur er Hrolleifsdalur, og þarna eru
einu verulegu skógarleifar í Skagafirði.
I Hreðuhólum, sem loka mynni Kolbeinsdals, og við eyðibýlið
Sviðning andspænis, skammt innan við Smiðsgerði, mun kjarr hafa
haldizt lengi. Bæjarnöfnin tvö eru athyglisverð. Það hefur verið
gert til kola fyrrum í Sviðningi og smíðað við kolin í Smiðsgerði.
Ingólfur Davíðsson.