Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 5
NÁTT Ú RU F RÆÐIN G U R I N N
51
þegar sent á vettvang og fann eyju 30 m háa og 150 m í þvermál,
og gaf henni nafnið Myojin-syo eftir áðurnefndu fiskiskipi.
Brátt breyttist gosið, sprengingar urðu strjálli en kröftugri og
hjálpuðu sjávargangi til að eyða eynni, og þegar 21. sept. var hún
horfin. Ævi hennar var því aðeins t;ep vika. En sprengingarnar
héldu þarna áfram, tvisvar til þrisvar á dag, út allan september,
strjáluðust úr því, en hættu ekki að öllu fyrr en el'tir ár. Það var
ein slík sprenging, sem splundraði japanska rannsóknarskipinu
Kaiyo-Maru V., sem kom að gosstaðnum 24. sept. með 22 manna
áhöfn og 7 vísindamenn um borð, og ekkert hefur síðan til spurzt.
Síðari rannsókn leiddi í ljós, að heljarmikil sprenging hafði orðið
jtarna þennan dag. Nokkrar fjalir úr skipinu lundust nálægt eld-
stöðvunum og í þeim molar af vikri, samskonar og myndaðist í Jjessu
gosi. Hafði sprengingin lamið vikurinn inn í viðinn.
Á Aleutaeyjaboganum, sem gengur vestur af Alaska skaga, er
frægt eldfjall, sem heitir Bogosloff. Það er eldhryggur, svipaðrar
gerðar og Hekla, og rís upp af hafsbotni á 2000 m dýpi. Stundum
hlaðast upp á hryggnum gígkeilur, eiu, tvær eða Jirjár, svipað og
gerðist með Axlargíg og Toppgíg Heklu í síðasta gosi hennar, og
hafa jteir risið allt að 000 m yfir sjávarmál, en jtess á milli brotna
Jiessar eldeyjar niður og hverfa, ein eða tvær eða jafnvel allar, og
talið að bæði sprengingar og sjógangur valdi.
Eftir endilöngu Atlantshafi liggur hryggur er nefnist Miðatlants-
hryggurinn. Rannsóknir vísindamanna í Lamont Observatory, sem
er hafrannsóknastöð Golumbia háskólans í New York, hafa leitt
í Ijós, að hryggur jtessi er klolinn að endilöngu af sprungu eða
sprungukerfi, Miðatlantsgjánni, en slíka gjá telja þeir Lamonts-
menn liggja eftir úthöfunum öllum. Miðatlantshryggurinn er jarð-
fræðilega séð mjög ungur og ókyrr enn. Margir jarðskjálftar eiga
Jtar upptök sín og hann er víða eldbrunninn bæði neðansjávar og
þar sem hann rís úr sæ, en á honum eru m. a. Tristan da Cunha,
Ascension, Azoreyjar og Jan Mayen. Við Ascension og Azoreyjar
eru neðansjávargos alltíð. Sumarið 1811 reis úr sjó við Azoreyjar
eyja, sem varð 90 m á hæð, og um sjómíla að ummáli. Bretar skírðu
hana Sabrína, en hún var horfin árið eltir.
Síðasta neðansjávargosið við Azoreyjar hófst 27. september 1957,
um eina sjómílu undan eynni Fayal, en sú eyja er raunar eldfjall,
um 1000 m hátt, með miklum sigkatli (öskju) efst.