Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 7
NÁTTÚRUFRÆÐIN GU R1 N N
53
Undanfari neðansjávargossins voru jarðhræringar í 11 daga. Er
gosið hafði varað hálfan mánuð var þarna komin eyja, 100 m há
og 700 m í þvermál, en nærri klofin af sprungu, sem sjór léll inn í.
-1 dögum seinna hætti gosið í hili og hálfunr mánuði síðar, ‘50. okt.,
var eyjan horfin. Snennna í nóvember hófust gosin að nýju og ný
eyja myndaðist, en innan hálfsmánaðar var lnin orðin landföst,
svo að eltir það var ekki lengur um eyjarmyndun að ræða, en í gos-
lok, nær ári síðar var jrarna komið um 300 m liátt fjall, sem hlaut
nafnið Capelinhos, eltir dröngum, sem þarna voru fyrir gosið.
Nokkuð hraun rann jrarna.
Víkjum Joá að íslandi.
Aðaleldstöðvasvæði íslands, sem virkt hefur verið síðan jöklar
tóku að hopa af láglendi fyrir um 15000 árum, liggur tun landið
j)vert, milli tertíeru basaltltreiðanna í austri og vestri. En Jiað tak-
markast ekki af núverandi ströndum landsins, það er hluti Mið-
antlantshryggsins og sprungukerfisins, sem áður var að vikið.
íslenzka eldstöðvasvæðið hefur tvær meginstefnur brotlína, sem
skerast um miðbik landsins, rétt norðan Vatnajcikuls. Norðanlands,
jiar sem eldstöðvasvæðið er um 45 km breitt, er stefna sprungna,
gjáa og gígaraða sem næst frá norðri til suðurs. Sunnanlands og
suðvestan er stefnan frá suðvestri til norðausturs. Eldsúiðvasvæðið
er jaar klofið í tvi) belti af hinni svokiilluðu Hreppa-myndun. Ligg-
ur eystra beltið frá Kverkljöllum til Vestmannaeyja og er á j)ví að
finna nokkrar af virkustu og stórvirkustu eldstöðvum landsins:
(irímsvötn, Lakagíga, Heklu og Kötlu. Þetta belti er um 90 km
breitt. Vestra beltið, 40—00 km breitt, liggur frá Kili suðvestur um
Þingvöll og Reykjanesskaga.
Neðansjdvargos i'it aj Reykjanesi.
Virkustu eldstöðvar neðansjávar undan íslandsströndum eru í
beinu lramhaldi af vestra eldstöðvabeltinu, á svonefndum Reykja-
neshrygg, sem gengur suðvestur af nesinu langt til hals, og elzta
heimild um neðansjávargos við Island — ef undanskildar eru óljós-
ar írskar helgisagnir, sem hugsanlega gætu átt við gos á Islandi, eða
við landið — varðar vafalítið gos á þessu svæði.
2. mynil. Jarðeldasvæði íslands á postglasíaltíma og virkar eldstöðvar ásamt ár-
tölum gosanna. — Map showing llie zones of poslglacially active volcanoes in
Icelaml and llie vohanoes active since the Settlement Time.