Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 9

Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 9
NÁTTÚRU FRÆÐIN G U RI N N 55 son lann Eldeyjar (Ibid. bls. 182). C)g enn bætir Oddaverjaannáll um vitneskju vora: „Sörli fann Eldeyjar hinar nýju, en hinar hurfu er alla ævi höfðu staðið" (Ibid., bls. 478). Aðrir annálar geta aðeins landskjálftans og manntjónsins, sem er hið mesta sem vitað er um af völdum landskjálfta á íslandi (Ibid., bls. 23, 62, 255, 325). Þótt hinum fornu annálum beri saman um ártalið er þess að minnast, að þeir eru færðir í letur alllöngu eftir atburði þessa og væri ártalinu ekki fyllilega að treysta, ef ekki kæmi til enn ein lieimild, sem telja ntá næstum samtímaheimild, er getur neðansjáv- argoss þetta ár. bessi heimild er Páls saga biskups, sem skráð mun skömmu eftir andlát hans, sem varð 29. nóv. 1211. Höfundur vitn- ar til Ara fróða um það hversu jörðin drúpti eftir fráfall Gizurar biskups, en síðan er það rakið, „hversu margur viðbjóður hefir farið fyrir fráfalli þessa hins dýrlega höfðingja Páls biskups: jörðin skalf öll og pipraði af ótta; himin og skýin grétu, svo að mikill hlutur spilltist jarðar ávaxtarins, en himintúnglin sýndu dauðatákn á sér, þá er náliga var komið að hinum efstu lífsstundum Páls biskups, en sjórinn brann og lyrir landinu þá; þar sem hans biskupsdómur stóð ylir sýndust náliga allar höfuðskepnur nokkuð hryggðarmark á sér sýna frá hans fráfal 1 i“ (Bisk. I, bls. 145). Loks er landskjálftans 1211 getið í Guðmundar sögu hinni elztu og sagt að „urðti XVIII menn undir húsum“ (Bisk. I, bls. 503). Það sem draga má saman af þessum fáorðu heimildum er þetta. Árið 1211, líkast til síðla árs, verður eldgos undan Reykjanesi. Á gossvæðinu verða mikil umbrot, eyjar siikkva þar í sæ en aðrar rísa úr sæ og má mjög líklegt telja, að þar hafi átt upptök sín sá mikli jarðskjálfti og mannskaði er 14 eða 18 manns láta lífið undir hrynj- andi húsum. Þær eyjar er myndast, eru nefndar Eldeyjar, og er nafnið út af fyrir sig næg sönnun þess að eldsumbrot hafi orðið á þessum slóðum. Athyglisvert er, að Oddaverjaannáll segir Eldeyj- ar hafa verið þarna lyrir, er alla ævi hafi staðið, og bendir það til eldsumbrota á þessum slóðum löngu fyrir 1211. Frásögn Herberts kapelláns sannar, sem fyrr getur, að gosið hefur undan íslands- ströndum, og þá líklegast undan Reykjanesi, fyrir 1178, en sé Odda- verjaannál að treysta, og hann virðist oft næsta traust heimild, bend- ir þetta til alhniklu eldri eldsumbrota, en ekki verður úr því skor- ið, hvort Eldeyjar hinar fornu hafi hlotið nafn af eldsumbrotum í nálægð þeirra, eða hvort það var vegna þess að menn vissu þær hafa

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.