Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 16
NÁTT Ú R U F R/Kfil N C> II R I N N 62 6. mynd. Riss Peder Pedersens skipstjóra af Nýey. ÞjóSskjalasafnið. — Caplain P. Pedersens sketch uj Nýey. The Icelandic National Archives. Uppgötvun þessarar nýju eyjar vakti mikla athygli þeirra liáu herra, sem réðu málum íslands úti í Kaupinhafn. 26. júní 1783 er gefin út konungsúrskurður (stjórnarskipun) til Rentukammers- ins, svo hljóðandi: „Þar eð eyja hefur óvænt orðið til í landskjálft- um og eldsumbrotum í hafinu út af Reykjanesi, nokkrar mílur undan suðurströnd landsins, og ástæða er til að óttast, að jiegar eldur sá slokknar, sem enn logar, muni útlendingar geta sezt að á eynni til óbætanlegs tjóns íslenzkum fiskveiðum, ber voru kammeri að gefa stiftamtmanninum á Islandi eindregna skipun þess efnis, að þegar er mögulegt verður að nálgast þetta nýja land skuli hann fara með einu af skipum fslandsverzlunarinnar og slá hátíðlega eign vorri á það, og ekki aðeins draga ]rar upp danska fánann held- ur reisa þar þann stein með ártali og fangamarki voru, sem héðan verður sendur. Einnig skal hann semja skjal um landnám þetta í tveim samhljóða eintökum og skal annað geymast á fslandi, hitt sendast hingað. Eynni skal gefið naliiið Nýey. Allt ])etta verður að gjöra, enda þótt svo kunni að fara að eyjan hverfi svo sem hún til kom. Vort kammer, sem þetta er falið, verður að semja um allt viðvíkjandi skipi því, sem notað yrði, við stjórn íslandsverzlunar- innar. Thodal stiftamtmanni var skrifað brél' 28. júní og honum uppá- lagt að framkvæma skipunina og skipa kaupmanninum í Hafnar- lirði að vera til aðstoðar og láta póstskip taka með stein þann, sem reisa skuli í eynni og tilhúinn muni eftir nokkra daga. Er steinn-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.