Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 25
NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN 71 gosið í Helgafelli síðastliðin 6000 ár eða svo, og það sem átt er við í 1 lanksbók og Melabók er einfaldlega, að þar sent Herjólfnr byggði, sé nú bert og blásið hraun. Enda segir um son Herjólfs, Orm auðga, að liann bjó á Ormsstöðum við Hamar neðri, þar sem nú er blásið allt. Uppblástur hefur víða orðið afleiðing landnáms á íslandi. Á korti Þórðar biskups Þorlákssonar al: Norðuratlantshafi frá um 1669 er sýnd eyja alllangt suður af íslandi, og stendur við hana að Spánverjar hafi séð hana 1613. Ekki veit ég nein önnur deili á þessari eyju. Hafi Spánverjar raunvertdega rekizt á eyju langt und- an íslandi þetta ár, er líklegast, að það hafi verið á Reykjanes- hryggnum, enda þótt hún sé sýnd austar en svo á korti Þórðar. Ann- ars eru allskonar eyjar sýndar kringum ísland á gömlum korturn. Nægir að minna á Krosseyjar fyrir vestan land ;i sama korti Þórðar, og Ægisey og Ægisland á uppdrætti Jóns lærða, sem prentaður var í Grænlandssögu Þormóðs Torfasonar. Einu fregnirnar um eldsumbrot í nánd við Vestmannaeyjar er að linna í sambandi við landskjálftann mikla á Suðurlandi haust- ið 1896. Miðvikudaginn 23. sept. 1896 birtist í ísafold fregn með yfir- skriftinni Eldur uppi i Geirfuglaskerjum eystri: „Maður úr Land- eyjum, l'rá Hallgeirsey, fullyrðir, að þaðan hafi sézt til elds, 3 kveld í röð, hin síðustu í vikunni sem leið, úti í hafi, svo að ber milli Vestmannaeyja og Dranga. Var þar kallað, að eldurinn kæmi upp úr sjóntim, en hefir auðvitað annað hvort verið í nýrri ey eða hólma, er upp hefði átt að koma af eldsumbrotum, eða þá í Geir- fuglaskerjum eystri, sem mjög vel getur komið heim eptir stefnunni. Eldurinn eða „loginn“, sem svo er nefndur, en er raunar ekki annað en bjarmi, sem leggur upp á loptið af gosinu, á að hafa verið tvískiptur neðst, eða á 2 stöðum, en lagzt saman, er ofar dró. Maðurinn segir, að sýn þessa liali menn horft á af mörgum bæj- um í Landeyjum, kveld eptir kveld, þar á meðal l'rá prestsetrinu, Bergþórshvoli. Sumir ímynduðu sjer lyrst að þar væri skip að brenna, en sáu, að það gat eigi verið, er þetta hélt áfram kvelcl eptir kveld“. (ísafold, 23. sept. 1896, XXIII. árg. bls. 262-263). f næsta tölublaði ísafoldar, dags. 26. sept. er komið annað hljóð í strokkinn. Þar segir: „Eldgossagan úr Vestmannaeyjum mun vera tómir höfuðórar, eins og annað af því tagi, sem sí og æ hefur verið að gjósa upp l'rá því að landskjálftarnir hófust. Eru meir en lítil

x

Náttúrufræðingurinn

undertitel:
alþýðlegt fræðslurit um náttúrufræði
Værktype:
Samling:
Gegnir:
ISSN:
0028-0550
Sprog:
Årgange:
92
Eksemplarer:
295
Registrerede artikler:
Udgivet:
1931-nu
Tilgængelig indtil :
2023
Udgivelsessted:
Nøgleord:
Beskrivelse:
Náttúrufræði.
Sponsor:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue: 2. Tölublað (1965)
https://timarit.is/issue/290492

Link to this page: 71
https://timarit.is/page/4262861

Link to this article: Neðansjávargos við Ísland
https://timarit.is/gegnir/991006112049706886

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

2. Tölublað (1965)

Actions: