Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 30
76
NÁTT Ú R U F RÆ ÐINGURINN
Tertiera basa11,myndunin
Hið forna berg blasir við sjónum m. a. í Esjunni. Það er að lang-
mestu leyti byggt upp aí hraunlögum, sem hlaðist hafa hvert ofan
á annað í f jölda eldgosa, sem oftast nær hafa Iíklega verið sprungu-
gos, eins og þau sem jrekkt eru frá vorum dögum.
Millilög í tertiera basaltinu á þessu svæði eru yfirleitt. mjög lítið
áberandi. öftast nær eru aðeins þunn lög af rauðu gjallkenndu bergi
milli þeirra, oger það efra og neðra borð hvers hrauns. Þó koma fyrir
lög af eins konar móbergi eða brúnleitum sandsteini milli basalt-
laganna og einnig lcig af jökulbergi (tillit) sem vitna um tilveru
jökla einnig á þessurn tíma. Verður það ekki rakið nánar hér. í ter-
tiera basaltinn og millilögum þess er mikið um sekundera mínerala
þ. e. a. s. mínerala, sem myndast hafa í berginu á löngum tíma og nú
fylla holur og sprungur í því. Þetta eru aðallega zeolitar (geislastein-
ar), kalsit (silfurberg), jaspis og kvarts. Þessir mineralar fylla allar
holur í berginu og gera það þétt. Þetta veldur því að tnjög litlir
möguleikar eru á að vinna kalt vatn úr þessu bergi með borunum.
Það berg, sem hér er talið vera tertiert, kemur fram, fyrir utan Esj-
una einnig í (irímarsfelli, Úlfarsfelli, Hafrahlíð og fjöllunum þar í
kring, eins og kortið sýnir. Auk þess kemur það fram báðum megin
Viðeyjarsunds, í Gufunesi og lítils háttar í Geldinganesi. Einnig sér
í það við (felgjutanga vestan við Elliðavog. Sunnar er mér ekki
kunnugt um að það komi fram, hins vegar er tiltölulega grunnt á
jrað víða, t. d. í Reykjavík.
Mosfell í Mosfellssveit virðist hala nokkra sérstöðu ;í Jressu svæði,
og hefur ekki verið unnt að taka endanlega afstöðu til jress spurs-
máls, hvort telja beri Jrað til tertiera bergsins eða hins yngra. Það er
að mestu úr bólstrabergi, en talið er að Jrað myndist einkurn Jrar sem
hraun rennur í vatn eða þar sem eldgos liafa orðið undir jöklurn. Það
virðist ekki ólíklegt að Mosfcll sé fornt eldfjall myndað við gos und-
ir jökli og þá væntanlega á einhverri af hinum l'yrstu ísöldum hins
kvartera jökultíma. Bergið í Mosfelli er lítið eða ekkert holufyllt og
gæti það komið heirn við þá skoðun, sem hér hefur verið látin í Ijcis.
Grágrýtið.
Eins og getið er um hér að framan, er berggrunnur sá sem á kort-
inu er talinn vera yngri en Irá tertier að langmestu leyti grágrýti, en
það nafn er almennt notað í daglegu tali um gráleitt dóleritiskt ólí-