Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 34
80
NÁTTÚ RU FRÆÐINGUIUNN
I—III er tekið úr kjarna úr borholu við Rauðhóla. I ú 200 m dýpi,
II á 183 m, III á 9,8 m IV er frá Hríshöfða og V er tekið í Heiðmörk
og sennilega komið frá öðrum eldstöðvum.
Nútima hraun.
Ekkert hraun hefur komizt jafn nálægt höfuðstaðnum og hraun
það, sem runnið hefur út í Elliðavog. Hraun þetta er að því er Þor-
leifur Einarsson telnr komið úr gígum austan við Bláfjöll, nefnist
gígurinn Leitin og verður hraunið því nelnt Leitahraun. Austan til
er það mjög hulið yngri hraunum, en kemur Iram vestan við Drauga-
hlíðar, og fellur þaðan um Vatnaiildur, Sandskeið, Fossvelli og Lækj-
arbotna út í Elliðavatn og þaðan eftir fornum farvegi Elliðaánna í
sjó út. Rauðhólar eru gervgígir í þessu hrauni. Mór hefur fundizt
undir því rétt fyrir ofan brúna á Suðurlandsvegi. Hann hefur verið
aldursákvarðaður og reynzt vera 3500±340 ára samkvæmt niðurstöð-
um af C14 ákvörðun. Þegar sprengt var fyrir stíflugarðinum við Ár-
bæ fundust að sögn Sigurðar Ólafssonar, verkfræðings, kol undir
hrauninu þar. Hefur þar því verið skógur eða kjarr þegar hraunið
rann.
Milli Heiðmerkur og Selljalls hafa runnið juikil hraun norður
eftir. Þau ganga undir einu nafni Hólmshraun. Það er þó um a. m. k.
5 mismunandi hraunstrauma að ræða. Sá elzti þeirra kemur fram rétt
austan við Gvendarbrunna og helur skammt austar lallið nærri því
þvert yfir Leitahraunið. Hraun þetta er því yngra en Leitahraun og
þar með iill Hólmshraunin, sem verða hér nefnd Hólmshraun I—V.
Hraun I er þá hið elzta og V það yngsta. Vestan og sunnan Heið-
merkur eru fleiri hraunstraumar, en ekki verður það rakið nánar
hér. Þó skal getið hrauns þess sem komið helur úr Ikirfelli og því
verður nefnt lkirfellshraun hér, en gengur undir ýmsum nöfnum
á ýmsum stöðum, svo sem Smyrlabúðarhraun, Gráhelluhraun, Hafn-
arfjarðarhraun, Garðahraun og Gálgahraun. Það hefur fallið vestur
vestan við Vífilsstaðahlíð og tinnur álma vestan við Sléttuhlíð, en sú
|>riðja hverfur undir yngri hraun vestan við Kaldársel. Það er ekki
ástæðulaust að hafa í huga að hér í nágrenninu hafa orðið a. m. k.
(> eldgos á skemmri tíma en um 5300 árum. Líkur benda til að þau
séu margfalt fleiri. Engar sagnir eru til um neitt þeirra, það mér er
kunnugt.