Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 35
N A T T Ú RIIF RÆÐIN G U RI N N
81
Bergsprungur og rnisgengi
Það er alkunnugt að Reykjanesskagi er allur sprunginn mjög.
Sprungur þessar og sprungukerfi stefna yfirleitt frá norðaustri til
suðvesturs. Þetta er hluti af sprungukerfi jrvi', er liggur um landið
þvert í þessari stefnu, en þannig stefna einnig svo að segja allar gos-
sprungur og gígaraðir á Suður- og Suðvesturlandi. Það er ekki vafa
bundið, að Jtetta stendur í sambandi við neðansjávar hrygg þann,
er liggur að endilöngu Atlantshafi, en einmitt á honum eru aðal-
jarðskjálftasvæði þess og einnig eldfjöll. Sprungukerfi þau, sem
hér verða tekin til meðferðar, eru aðeins lítill hluti af þeim sprung-
um, sem liggja að Reykjanesskaga endiliingnm. Það er erfitt að draga
víðtækar ályktanir af athugunum á aðeins nokkrum hluta svæðis-
ins, og varhugavert að taka svona hluta út úr sambandinu við aðal-
sprungukerfið. Þetta hefur ]ró tímans vegna orðið að gera. Á hitt skal
jx') jafnframt bent, að æskilegt hefði verið að kortleggja sprungu-
kerfin á skaganum iillum nákvæmlega, og allt norður undir jökla.
Að því mun og verða unnið framvegis eftir föngum.
Vestan Hvaleyrarholts og Stórhcifða við Hafnarfjörð eru víðáttu-
mikil hraun, sem ná út allan skagann. Þarna er um að ræða fjölda
hrauna, hve mörg þau eru veit enginn.
Sunnan og vestan við áðurnefnda staði verður ekki vart við tekto-
niskar sprungur í hraunum þessum, fyrr en kemur nokkuð langt frá
fjöllunum, þ. e. þeirra gætir ekki í hinum yngstu hraunum. Um
jiveran Bleiksteinsháls norðan við Hvaleyrarvatn liggur misgengi,
sem er mjög greinilegt skammt vestan við Gráhelluhraun og rétt
vestan við hliðið, sem þar er á sauðfjárgirðingunni. Misgengi jretta
nefnist Bláberjahryggur, en er raunar enginn hryggur í orðsins réttu
merkingu. Þessu misgengi má fylgja frá Jtví rétt norðan við vestnr-
enda Hvaleyrarvatns og að hrauninu, sem áður er getið, en jrað er
syðri kvísl Búrfellshrauns (Hafnarfjarðarhrauns). Sýnilegt misgengi
á þessari leið er mest ‘5—4 m og er austurbarmur sprungunnar lægri
(sbr. kortið). Austan við hraunkvíslina heldur misgengið áfram um
Setbergshlíð og Urriðavatnsdali, en ekki sézt votta fyrir Jjví á hraun-
inu sjálíu, en Jtað jtýðir augljóslega það, að misgengið hefur ekki
verið virkt svo nokkru nemi frá því að hraunið rann. Verður nánar
vikið að jtessu síðar.
í Setbergshlíð er misgengið verulegt, og á há-hæðinni milli hraun-
kvíslanna er það a. m. k. 7 m. Þegar kemur austur yfir eystri kvísl