Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 36
82
NÁTTÚRUF R Æ ÐINGllRINN
Búrfellshrauns, þá er fallið hefur niður með Vífilsstaðahlíð, hverfur
misgengið, en sér þó votta lyrir áframhaldi sprungunnar, og liggur
hún austan við Vífilsstaðavatn. Svo er ekki hægt að rekja hana með
vissu, en líklegt er, að hún liggi um mýrasundið vestan við Rjúpna-
hæð og Vatnsendahæð. Mundi hún þá liggja um austanvert Breið-
holtshvarf. Þó skal Jrað tekið fram að óvísst er með öllu, að sprungan
haldi þannig áfram. Það má vel vera að hún haldi ekki áfram austar
í beinu framhaldi af jiví sem nú hefur verið lýst, Það er ekki óvenju-
legt að sprungur hverfi og taki sig svo upp aftur nokkuð á hlið við
fyrri stefnu. Þessi brotlína verður framvegis nefnd Bláberjahryggs-
misgengið. Vestan við Jietta misgengi, Jrar sem Jrað liggur um Set-
bergshlíð, er annað misgengi. Þess verður lyrst vart austan við vestur-
álmu Búrfellshrauns. Svo má rekja það um norðurhornið á Nónhæð
ogaustan við mýrina austur af Urriðavatni. Svo sér fyrir Jrví austan
í Urriðavatnsholti, en frá því er Jrað horfið. Um austanvert Urriða-
vatnsholt er enn eitt misgengi og liggur vegurinn yfir það á tveim
stöðum. Einnig sér fyrir því sem sprungu í Vífilsstaðahlíð og stefnir
hún á Vífilsstaðavatn austanvert. Þetta eru vestustu brotlínurnar,
sem sannanlega eru á þessu svæði.
Næsta misgengi fyrir austan Bláberjahrygg liggur um vestanverð-
an Stórhöfða, Hvaleyrarvatn, hæðina norðaustur af J>\ í og um
Setbergshlíð, en verður svo ógreinilegt er austar dregur að ekki er
hægt að rekja J>að. Misgengi liggur og um hátind Stórhöfða, en ekki
verður það rakið alla leið austur að Gráhelluhrauni. Skammt austur
af Stórhöfða eru enn tvi) misgengi. Það eystra liggur um Fremsta-
höfða, á takmörkum grágrýtis og Búrfellshrauns. Þessi misgengi
sjást ógreinilega í Sléttuhlíð, en koma betur fram í Setbergshlíð
austanverðri.
Misgengi þau, er hér hafa verið talin, sjást ekki í Búrfellshrauni
að því austasta einu undanskildu.
Eftir að hingað kemur taka misgengin að verða svo greinilega að
enginn getur verið í efa um tilveru þeirra. Um Hjalla er aðal mis-
gengið sem er mest áberandi milli Búrfellshrauns og Elliðavatns.
Mesta sýnilega misgengi á þessum slóðum er við Vatnsendaborg og
Arnarbæli og J>ar er það samtals urn 65 m. Það er athyglisvert að einn-
ig Búrfellshraun er brotiðog misgengið um J>essa línu ograunar líka
um sprungu, sem er nokkru vestar en aðalmisgengið. Við ]>á sprungu
er misgengið í hrauninu sjálfu 2,73 m en í grágrýtinu ]>ar austur af