Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 42
88
NÁTT Ú RUFRÆÐINGURINN
brún Bæjarfellsins og Þverfells er mynduð af þessu misgengi, sem
vel gæti numið nokkrum tugum rnetra, en ekki hefur liingað til ver-
ið hægt að mæla. Orstutt austan við aðalmisgengið er annað minna
en alveg samhliða því. Stendur hærinn í Þormóðsdal í tungunni
milli þeirra. Þau koma saman rétt fyrir neðan hæinn, og liggur
kvartsnáma sú, sem þar var einu sinni, í þessu misgengi. Kvartsið og
aðrir „míneralar“, sem þarna var og er enn að finna, eru myndaðir
sem sprungufyllingar í misgenginu.
Vestast í Reykjafelli er misgengi, sem eftir stefnunni að dæma mun
vera skammt vestan við hæinn að Suður-Reykjum. Vestast í Skamma-
dal koma fram jökulbergslög, (i—8 m jiykk. l.íklega eru það sömu lög
og nefnd eru T2 í grein minni jökulherg í nágrenni Reykjavíkur
(Náttúrufræðingurinn árg. 30, 1 !)(>() hls. 55—67). Þau eru brotin af
misgengissprungunni. Misgengið reyndist vera þarna um 59 m og
er vesturhliðin sigin. Haldi þessi sprunga áfram, eins og gera má
ráð fyrir, er hún á svæðinu milli Úlfarslells og Hafrahlíðar að aust-
anverðu.
í gljúfri Reykjaár, skammt austan við Suður-Reyki er misgengi,
er nemur um 21 m, og má sjá það í árgljúfrinu. Það gæti verið sama
misgengi og áður er getið vestast í Hafrahlíð og einnig kemur fram
norðan í Reykjalelli. Rétt austan við hæinn að Suður-Reykjum er
líklega enn eitt misgengið, en ekki verða færðar á Jiað óyggjandi
sannanir.
A. m. k. 6 misgengi eru í Æsustaðafjalli (shr. kortið), en ekki hefur
reynst mögulegt að inæla nema eitt þeirra. Það er 4. misgengið vest-
an frá talið, og nemur jiað 17 metrum. Misgengi er og um Skamma-
dal austanverðan (sjá síðar).
í Helgafelli eru a. m. k. 2 misgengi. Það eystra virðist vera um 50
m, en þó er sú mæling nokkuð óviss. Vestra misgengið hefur ekki
tekizt að mæla. Við Helgadal er misgengi Iremst (vestast) í Katlagili
og liggur það um Grímarsfell jivert. Brot og óverulegt misgengi virð-
ist vera í gilinu næst vestan við Helgadal og eins í gili Norður
Reykjaár. Nemur það misgengi 6—8 metrunr. Brot og misgengi má
ogrekja um Grímarsfell jivert, shr. kortið.
Bergsprungur, lindir og uppsprettur.
í Lækjarbotnum norðan við Gráhelluhraun austan við Hafnar-
fjörð var áður vatnshól Hafnarfjarðar. Þar koma allstórar lindir