Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 45
NÁTT Ú RUFRÆÐIN C. IJRI N N
89
undan hrauninu. Þær eru vatnsmeiri en svo, að líklegt sé að raun-
veruleg upptök þeirra séu í hrauninu. I'il þess er aðrennslissvæði
þeirra of lítið. Skammt suður ai hinu lorna vatnsbóli liggur mis-
gengissprunga um dalinn þveran. Á Ásfjalli nefnist misgengishjall-
inn Bláberjahryggur, eins og áður er getið (sjá kortið). Mér virðist
yfirveguncli líhur fyrir, að' vatnið komi mestmegnis úr þeirri sprungu.
Annað misgengi liggur um Nónhæð norðanverða og má rekja það að
Gráhelluhrauni. í beinu áframhaldi af því eru lindir við Urriða-
vatn og einnig er Jrar borhola, sem gerð var og notuð á stríðsárunum.
Núverandi vatnsból Hafnarfjarðar er í Kaldárbotnum. Það vatn
kemur beint úr misgengissprungu þeirri er klýfur Búrfell, myndar
vesturbrún Helgadals sker þvert yfir Kaldárhnúk og heldur svo
áliam suður eftir Undirhlíðum og Sveifluhálsi.
Vatn nokkurt er að jafnaði í Helgadal, og má sjá J)að renna suð-
vestur eltir gjánni í átt að vatnsbólinu og á Jrað vafalaust greiðan
gang að Jrví, þar sem sprungan liggur í gegnum fjallið. Vestan við
Jietta misgengi er 17,5 m niður á grunnvatnsborð. í Búrfells-
gjá, sem raunar eru fornar hrauntraðir, en engin gjá í venjtdegri
merkingu, er vatn sýnilegt í sprungu skammt austan við réttina.
Austan við Vífilsstaðavatn eru nokkrar allstórar lindir. Að Jrví er
virðist eru þær á sprungum þeim sem áður er getið um (sbr. kortið).
Mesta misgengi á öllu þessu svæði er það, sem einu nalni er nefnt
Hjallar. Þeir ná frá Búrfellshrauni norður að Elliðavatni. Misgengin
ná raunar lengra suðvestur eftir, eins og áður er getið, og lengra en
kortið sýnir. Allt Jretta svæði er mjög sprungið og misgengið. Ein
sprunga liggur eftir suðurbakka Elliðavatns, og þar er röð af upp-
sprettum, sem fylgja sprungunni austur eftir. Sunnan við vatnið
innan girðingar í Heiðmörk eru einnig margar lindir og sumar
stéjrar. Uppsprettur þessar eru á mjög áberandi hátt tengdar sprung-
unum (sjá kortið). Vestan við bæinn Elliðavatn eru og nokkrar lind-
ir, og eins eru margar lindir norðan og austan í grágrýtistangangum
sunnan og austan við Hrauntúnstjörn, sem svo er nefnd á korti her-
foringjaráðsins. Þær koma fram á mótum hrauns og grágrýtis og eru
án efa tengdar sprungum í grágrýtinu. Undan hrauninu hjá Jaðri
kemur I jöldi linda, sem að jafnaði eru ærið vatnsmiklar. Vatn Jæss-
ara linda og eins Gvendarbrunna sjálfra kemur án ela úr sprungum
í Grágrýtinu.
Við Silungapoll eru stórar lindir og virðist líklegt að eins sé ástatt