Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 50

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 50
94 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN eítirliti á <»11 u sprungusvæðinu og undir engum kringumstæðum í námunda við vatnsbólin sjálf eða við opnar sprungur eða gjár. I <)ðru lagi ætti ekki að leyfa bráðabyrgða byggingar (sumarbú- staði) á jressu sama svæði nema búið sé svo um frárennsli og olíu- geyma að óyggjandi sé að óhreinindi j»aðan geti ekki komist í vatns- bólin. í þessu sambandi eru j»að eðlilega sprungurnar sjálfar, sem l»er að varast, en einmitt á ]»eim eða alveg við þær hafa margir J»egar valið sér land undir sumarbústaði. Það vill löngum brenna við að fólk noti gjár og sprungur til að kasta í alls konar óþverra. Slíkan sóðaskap má með engu móti líða. Tektoniskar sprtmgur og gossprungur Sambandið milli sprungnanna og lindanna hefur verið rakið hér að framan. Skal nú vikið að öðru atriði, sem hingað til hefur ekki verið tekið til meðferðar, en j»að er sambandið milli sprungugosa og tektoniskra sprungna. Hér að framan var J»ess lauslega getið að misgengissprunga sú, er liggur um Búrfell — Helgadal — Kaldárbotna og Undirhlíðar, liafi einnig gosið hrauni. Á þessn misgengi eru stór gígahrúgöld beint vestur af Helgafelli svo sem 1—1,5 km suður frá vatnsbólinu, og hafa ]»aðan runnið hraun austur og norður milli Helgafells og norðurenda Gvendarselshæðar. Smá hraunspýja hefur og fallið vest- ur sunnan við Kaldárbotna og staðnæmst örskammt austan við Kald- ársel, og önnur <»rmjó hefur fallið vestur af hæðinni á móts við suð- urenda Helgafells. F.ftir Undirhlíðum endilöngum liggur sigdalur og í honum helur gosið og smáhraun runnið þar út úr sprungunni vest- an megin dalsins, án J»ess að til gígmyndana hafi komið. Þetta er sama misgengi og liggur um Kaldárbotna og Helgadal eins og áður er getið. Það er alvanalegt á Reykjanesskaga að tektoniskar sprungur hafi gosið hrauni og sýnir það hin nánu tengsl milli sprungnanna og eld- gosa á þessu svæði öllu. Sem dæmi má nefna Stampa á Reykjanesi, gígaröð þá, sem Ögmundarhraun hefur komið úr, gígaraðir við Sveifluháls, Vesturháls, Trölladyngju og víðar. Þvi skal hér slegið föstu að alls engar likur eru til pess að elcl- gosum sé að fullu og öllu lukið á Reykjanesskaga. Sömuleiðir skal á pað bent, að gos i námunda við pað svœði, sem hér hefur verið um

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.