Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 18

Náttúrufræðingurinn - 1937, Síða 18
12 NÁTTÚRUFKÆÐINGURINN iiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim litt, t. d. grænt og gult. Margar slíkar tegundir eru ræktaðar til skrauts, Lathyrus odoratus, Antirrhinum majus o. fl. Stökkbreyting er snögg, arfgeng breyting, sem ekki orsakast af kynblöndun. Menn vita ekki gerla hvað henni veldur. Samgræðlingar finnast, þótt undarlegt kunni að virðast, einn- ig í dýraríkinu. Þannig heppnaðist R. G. Harrison árið 1908 að græða saman unga froska af tegundunum Rana silvatica og Rana palustris. Þessir dýra-samgræðlingar urðu að fullvöxnum dýrum og þessir nýju froskar gátu eftir ástæðum verið Rana silvatica að framanverðu, en bakhlutinn tilheyrði Rana palustris eða öfugt. Svipað hefir tekizt við ýmis fleiri lægri dýr, og eru nú gerðar margar tilraunir í þessu efni. Er þetta æfintýrum líkast og minnir á gamlar tröllasögur um margskonar kynjadýr. Gríska fornskáldið Hómer nefnir t. d. dýr, sem var Ijón að framan, geit í miðjunni og dreki að aftanverðu. Ámóta frásagnir finnast í íslenzkum þjóðsögum. Auðvitað er þetta tilbúningur og ímyndun ein; en á hinn bóginn sýna rannsóknir og tilraunir á síðari árum, að með samgræðslu er hægt að framleiða hinar furðu- legustu plöntur og dýr. Má vel vera, að margar gamlar kynjasögur um þetta efni, verði einhvern tíma að veruleika. Að minnsta kosti er hér á ferðinni merkilegt rannsóknar- og viðfangsefni. Ingólfur Davíðsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.