Náttúrufræðingurinn - 1941, Qupperneq 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
107
á sama aldri vera nákvæmlega jafnstór og aldursflokkarnir vera
alveg aðgreindir, svo að nægilegt væri að mæla ýsuna til þess
að finna aldur hennar. Þannig er þessu þó ekki varið. „Fæð-
ingartími“ ýsunnar er dreifður yfir nokkrar vikur ár hvert, og
vöxturinn er misjafnlega hraður.
Á 3. mynd sjáum við einnig annað línurit (slitna línan), sem
táknar stærð skarkola. Það er allt öðruvísi í laginu heldur en
ýsu-línuritið, nefnilega með mörgum toppum og ekki jafnhliða.
Þar ægir nefnilega saman mörgum aldursflokkum, sem eru
nokkurn veginn jafnstórir, því skarkolinn vex hægt, og hrygn-
ingartíminn er langur og nær yfir mikið svæði, svo að stærstu
ársgömlu kolarnir eru stærri en þeir minnstu tveggja ára. Loks
gefur 4. mynd okkur yfirlit yfir mælingu á spærling. Þar ber
greinilega á fjórum aldursflokkum, en þeir eru „vaxnir saman“
og eldri en fjögurra vetra verður spærlingurinn ekki.
Við komumst nú að þeirri niðurstöðu: 1) Að úr því að stærð-
ardreifing smokksins á einhverjum ákveðnum tíma myndar
jafnhliða, eintoppa líhurit, verðum við að líta svo á, að allur sá
smokkur, sem við höfum mælt, teljist til sama aldursflokks (sé
á sama ári) og þá um leið til sama árgangs, og 2) að úr því að
stærðin breytist mjög á skömmum tíma, sé vöxturinn hraður og
því um ungan aldursfolkk að ræða. Nú er eftir að vita hve gam-
all þessi aldursflokkur er. Er hann ársgamall, tveggja vetra eða
eldri? Til þess að skera úr því, skulum við líta á 5. mynd. Þar
er dregin lína, sem á að sýna vöxtinn, eftir þeim föstu punkt-
um, sem við höfum: Meðallengdinni ca. 3. ágúst, 8. sept. (28,00)
og ca. 15. okt. (31,27 cm). Um stærðina á sumrin (fyrir ágúst-
byrjun) er annars lítið vitað, þar sem smokkurinn er þá tæplega
genginn og engin veiði fer fram. Þá eru eigi heldur til mælingar
frá vetrinum, er sýni stærðina eins og hún er orðin þá. Hér get
ég þó bætt við upplýsingum um tvo smokka, sem ég hefi rann-
sakað utan veiðitímans. Annar veiddist á Þór 17. júlí 1936 fyrir
sunnan land, við Vestmannaeyjar (63° 31,5' n. br. 20° 20' v. 1.)
og reyndist hann aðeins 41 cm með örmunum, en það svarar til
að kápan hafi verið 17,5 cm eða eins og sýnt er á 5. mynd. Hann
var ókynþroska, eins og allur sá smokkur, sem mældur hefir
verið. Loks barst mér einn frá Grindavík, en hann hafði rekið
þar um áramótin 1939—1940. Heildarlengdin á honum var 132
cm og kápan ein var 64 cm. Þessi smokkur var hængur mteð vel