Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 71
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
163
var lægst. Samkvæmt þessu hefir vatnið staðið 3,33 m hærra
árið 1908 en árið 1932, en eftir 1908 hækkaði það enn til 1911
eða 1912, og má því ætla, að munurinn á mestu og minnstu hæö
iþess hafi verið 4,0—4.5 m.
Árið 1926 tók Emil Jónsscn, vitamálastjóri, mynd við vatnið,
cg mátti af henni marka hæð vatnsins þá með mikilli nákvæmni.
En síðan 1930 hefir vatnshæðin verið mæld árlega og sum árin
oftar en einu sinni. Mælingaxnar annaðist Emil Jónsson frá 1932
—1938, en vegamálastjórnin eftir það. Samkvæmt mælingum
þessum reyndist vatnshæðdn eins og hér segir:
1924, í ágúst +200 cm miðað við mæl. 1930 134,44 yfir sjó
1930, 15. júlí 0 —
1931, 20. júlí h-36 —
1932, 7. sept. -r-77 —
1933, 27. ágúst +8 —
1934, 2. sept. +135 —
1935, 29. júlí +135 —
1936, 16. júlí +46 —
1936, 16. ág. +28 —
1937, 20. okt. +118 —
1938, 18. maí +146 —
1938, 7. ág. +132 —
1938, 10. sept. +143 —
1938, 25. nóv. +126 —
1939, 26. maí +191 —
1939, 28. júní +256 —
1939, 10. ág. +236 —
132,44 —
132,08 —
131,67 —
132,52 —
133,79 —
133.79 —
132.90 —
132,72 —
133,62 —-
133.90 —
133,76 —
133,87 —
133,70 —
134,35 —
135,00 —
134.80 —
Það gefur að skilja, að þessar mælingar séu of fáar til þess, að
af þe'm megi draga miklar ályktanir um ibreytingar vatnsins,
hversu þær garist eða hve leragi hver umferð (cyelus) standi. Þó
sýna þær, að vatnið hefir ekki vaxið jafnt hdn síðari ár, heldur
í stökkum með kyrrstöðu á milli eða jafnivel afturhvarfi. Þannig
hækkaði vatnsborðið um 212 cm frá 1932—1934, stóð svo í stað
til 1935, en lækkaði síðan á næsta ári um 107 cm.
En heimildir þær, sem hér hefir verið getið, benda til þess, að
hið síðasta breytingaskeið vatnsins hafi verið um 40 ár, eins og
munnmælin herma, og má því ætla, að þau styðjist við athug-
anir. Að minnsta kosti má telja víst, að vatnið hafd orðið mest
árið 1911 eða 1912, en farið síðan minnkandl til 1932.