Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
145
hjá forstjóra þess fyrirtækis, Gunnari Einarssyni, væri það ekki
komið á þennan dag. Þá hafa margir orðið til þess að sýna ritinu
þá velvild að styrkja það með auglýsingum og hefir það oft og
einatt dreg ð drjúgan. Loks hefir Hið íslenzka Náttúrufræðisfélag
veitt Náttúrufræðingnum nokkurn styrk árlega. Reyndar átti sa
styrkur að endurgreiðast félaginu í hlunnindum til félagsmanna,
cn þeir hafa átt kost á að fá ritið tveimur krónum ódýrara en
aðrir. Hitt er annað mál, að fáir af félagsmönnum hafa notfært
sér þetta, því að Náttúrufræðingurinn hefir aldrei átt yfir 50
kaupendur innan félagsins.
Náttúrufræðingurinn stendur nú á tímamóum. í annað sinn
hefir hann skipt um eiganda og í þet'ta skipti er það Náttúru-
fræðifélagið, sem hefir keypt hann. Ég er þeirrar skcðunar, að
það hefði verið hlutverk Náttúrufræðifélagsins að gefa ritið út
frá byrjun. En þar hefði verið um tvær leiðir að velja. Önnur
var sú, að gefa ritið út eins og gert hefir verið, fyrir ákveðið
árgjald, og hefði þá hverjum-, sem vildi, verið frjálst að kaupa
það, og félagsmenn ekki skyldugir til þess. Hin aðferð.'n hefði
ver.'ð, að láta Náttúrfræðinginn vera félagsrit, sem hver félags-
rnaður hefði fengið, vitaskuld gegn einhverri hækkun á árgjald-
inu til félagsins, og er vafasamt hvort átt hefði að gefa utan-
félagsmönnum kost á að eignast ritið í lausasölu.
Með þessum nýju eigendaskiptum ætti að vera að fullu séð
fyrir framtíð Náttúrufræðingsins. Hitt er ennþá óráðið, með
hverjum hætti hann verður bundinn félaginu, og er vafasamt
hvort hægt er að taka það mál til meðferðar fyrr en á næsta
aðaifundi í febrúar næskomandi.
í lok þessara hugleiðinga vildi ég mega óska Náttúrufræðifé- '
laginu til hamingju með hið nýja málgagn, og vona ég að þau
tvö, Náttúrufræðifélagið og Náttúrufræðingurinn, megi verða
hvort öðru til heilla. Náttúrufræðifélagið hefir vissulega betri
skilyrði en nokkur annar aðili í þessu landi til þess að vinna
Náttúrufræðingnum veg, en hann ætti á hinn bóginn að geta
crðið félaginu hin öflugasta lyftistöng, þegar fram líða stundir.
Á. F.