Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 42

Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 42
136 N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Laufröndin er vaxin víði og öðrum smávöxnum kjarngróðri. Þar hefi ég meðal annars séð allmikið af hinum einkennilega fjallajakobsfífli. Hann er fremur sjaldgæfur, kafloðinn öræfa- búi, sem fáir þekkja, enda lætur hann lítið yfir sér. Laufröndin er sannkallað Gósen sauðkindanna, sem una sér þarna fram eftir sumri, en leita norður á bóginn bústnar og blakkar á lagðinn, þegar hausta tekur. En þar eru líka aðrir sumargestir, sem una sér vel. Heiða- gæsirnar eiga þarna ágæta sumarhaga og straumendurnar vagga sér á vorbláum straumum og strengjum í skjóli við úfna apalkletta. Nyrzt við Laufröndina breikkar hraunið allmjög til vesturs. Myndast þar dálítill kriki, við hraunröndina vestanverða. Þar sprettur upp allheit, laug, — kölluð Hitulaug. Við Hitulaug er töluverður gróður, en enga sjaldgæfa plöntu er þar að finna. Fyrir norðan Hitulaug er hraunflákinn kallaður Hitulaugarhraun. Það er mjög illt yfirferðar og gróðurlaust að mesta. Norðan við þennan hraunfláka ibyrjar hinn eiginlegi Hraun- árdalur, sem ég hef áður minnzt á. Fyrir nokkrum árum var ég á ferð með víðförulum Breta um þessar slóðir. Lét hann svo um mælt, þegar við horfðum yfir Hraunárdalinn, að hér væri landslag mjög líkt og víða í Abessíníu. En vel má vera að þetta hafi verið fleipur eitt. Um langt skeið hafa Laufrandar- og Hitulaugarhraun verið óskalönd fjallarefsins. Hefir hann búið sér greni víðsivegar í kyrrlátum hraunhólum og herjað grimmilega á sauðfé nágrenn- isins. Það hefir því verið siður bárðdælskra bænda, vor hvert, að vitja nokkurra grenja, sem fundizt hafa, og er það sjálfsögð kvöð grenjaskyttunnar að vinna á skolla í hvert sinn er hans verður vart í greni. Vorið 1932 fóru þeir Tryggvi Guðnason og Hörður Tryggva- son feðgar frá Víðikeri í hina árlegu grenjaleit suður yfir Hrauná. Ekki man ég hvort þeir sáu nokkuð til ferða lágfótu, en að þessu sinni fundu þeir annað, sem merkilegt hlýtur að teljast. Nokkru fyrir austan Laufröndina sunnanverða er mjög hár og alleinkennilegur hraunklettur. Um langt skeið hefir skolli átt þar greni, sem hann hefir lagt í öðru hverju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.