Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 76
168
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
væri fróðlegt að fá úr því skorið, hvort þetta afrennsli er jafnt
eða ekki. í miklum þurrkum er trúlegt, að uppgufunin úr vatn-
inu verði meiri en aðrennsli 'þess, og ætti þá að renna úr tjörn-
inni inn í vatnið, að minnsta kosti ætti straumurinn í ósnum
að verða mjög lítill. í júlá 1930 mældi ég vatnshæðina daglega,
og virtist mér hún fara mjög eftir veðri. Mest var lækkunin 0,9
cm á sólarhring, og var þá hinn glaðasti þurrkur. Samkvæmt
því hafa á þessum tíma horfið úr vatninu um 778 500 smálestir
og svarar það til nærri 9 m3 rennslis á sekúndu. Er næsta ótrú-
legt, að aðrennslið nemi. sv.o miklu.
Jarðvatnsiborðinu hallar alls staðar að Kleifarvatni, nema að
norðaustan, cg hallinn er víðast mikill. Úrkomuaufcning á því
greiða leið að vatninu. Aftur liiggur afrennsli þess gegnum þröngt
skarð og eyfcst því ekki svo mjiög, iþó að vatnsborðið hækki,
heldur stendur það fyrir líkt og stífla. Er ekfci ósennilegt, að
þetta skýri það, að Kleifarvatn virðist hækka og læ'kka meira en
önnur vötn.
ÚLFAR VEIÐA LAX
í blaðinu Pacific Coast News (1939) er sagt frá því, að úlfar hafi
gert hinar grimmilegustu árásir á hrygnandi lax. Eftirli.tsmaður,
einhvers staðað í British Columbia, var á eftirlitsferð um hrygn-
ingarsvæðin á umráðalandi sínu. Á einum stað fann hann tals-
vert af laxi, sem dregihn hafði. verið á land og var hann þannig
útleikinn, að búið var að rífa af honum alla hryggspililduna, beggja
megin bakuggans. Við nánari rannskón kom í ljós, að hér höfðu
úlfar verið að verki og höfðu þeir víðar gert hin mestu spell-
virki á hrygnandi. laxi.
Hér er að ræða um nýjung í lifnaðarháttum úlfanna á þess-
um slóðum, og er hún, svo þokkaleg, sem hún er, talin stafa af
því, að hinni eðlilegu bráð úlfanna vestur þar hefir farið fækk-
andi hin síðari ár, en úlfunum hefir ekki fækkað að sama skapi,
nema síður sé. Auk þess eru verðlaunin fyrir að skjóta úlfa frek-
ar lág, aðeins 20 dalir (ca. 65 kr.) og bannað er að útrýma þeim
með eitri. Hafa nú þeir, sem afkomu sína eiga undir laxveiðun-
um, hafið herferð í þeim tilgangi að fá yfirvöld landsins til þess
að gera ráðstafanir, sem að gagni megi koma gegn þessum
ófögnuði.