Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 24
118
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ig út yfir grjóthringana, og er þá skapað samfellt gróðurlendi.
Verður þar móagróður þar sem hæst ber, en mýragróður hið
lægra. Þarna gat að líta öll gróðrarstigin, frá berum mel með
áberandi tiglum og grjóthringum til fullgróins mólendis eða
viðarmýra, sem hvort tveggja var greinilega þýft í samræmi
við tiglamyndunina, og hvarvetna þar, sem prófað var í lautun-
um, var örþunnt jarðlagið ofan á grjóthringnum. Greinilegust
var þessi myndun öll í kringum dálítið flóasund með tjörn í
miðju. Þarna virtist enginn vafi vera á, hvern þátt melatiglarnir
geta átt í sköpun þýfis.
Þá er jarðrennsli mjög áberandi þarna eins og raunar hvar-
vetna uppi á hálsum og fjöllum þar vestra. Mun það eiga veru
legan þátt í því, hversu gróðurlítið er víða hið efra, þótt ekki
sé um mikið hálendi að ræða. Þar sem nokkurt hlé skapast undir
jarðrennslisbrúnunum, er þó oftast nokkur fjalljurtagróður,
grasvíðir,1) grámulla,2) stinnastör2) og kornsúra.4)
í Kaldalóni er mikill gróður. Inn af leirunum eru víðlend mýra-
svæði gróin gulstör,5 *) sem þó er víðast lág og fremur kyrkings-
leg. Starengjum þessum lýkur við háa-jökulöldu, sem nær yfir
þveran dalinn. Er líkast því sem hún hafi slitnað frá hlíðunum,
því að framhald hennar beggja vegna liggja nokkru innar við
hlíðafæturna. Svo er mælt, að þar hafi fyrrum staðið bæirnir
Trimbilsstaðir að sunnan. en Lónhóll að norðan, en báðir eyðzt
af ágangi jökulsins. Jökulaldan er gróin lyngi og lágvöxnu birki-
kjarri. Fyrir innan hana breytist brátt gróður dalbotnsins. Þó er
næst henni nokkurt svæði vaxið gulstör5) og fífu.G) Annars er
dalbotninn þar fyrir innan að mestu gróðurlitlir aurar. Tvær
aðrar jökulöldur liggja innar yfir dalinn, en báðar eru þær lægri
en sú yzta. Alllangur spölur er frá instu öldunni að jökulsporð-
inum og má kalla það land gróðurlaust með öllu, þótt einstaka
plöntur hittist þ'ar í skjóli við steina. Á aurunum milli tveggja
yztu garðanna er móasef7) algengasta tegundin, en algengar eru
þar einnig axhæra,8) hvítmaðra,9) grasvíðir,1 °) lógresi11)
og sauðvingull.12) í dældum við polla vaxa víða rauðstör13) og
rjúpustör.14)
1) Salix herbacea. 2) Gnaphalium supinum. 3) Carex rigida. 4)
Polygonum viviparum. 5) Carex Lyngbyei. 6) Eriophorum polystachium.
7) Juncus trifidus. 8) Luzula spicata. 9) Galium silvestre. 10) Salix her-
bacea. 11) Trisetum spicatum. 12) Festuca ovina. 13) Carex rufina. 14)
C. Lachenalii,