Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 27
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
121
yfir í Grunnavík. Snæfjallaströndin er yfirleitt allsæbrött og
lítið eiginlegt undirlendi, nema helzt undan Unaðsdal, sem er
dálítið dalverpi upp af innanverðri ströndinni. Nálægt miðri
ströndinni, en þó norðar, eru skörð tvö mikil, Innra skarð og
Ytra skarð, en að öðru leyti er hlíðin órofin. Hlíðarbrúnin er
400—500 m há, en upp frá henni hækkar landið allmikið og
hæst eru þar einstök fjöll um 750 m (Snæfjall 747 m). Ströndin
horfir við suðvestri og nýtur þar vel sólar, en snjóþungt er á
vetrum og skaflar miklir niður eftir hlíðum allt sumarið, enda
þótt heitt verði þar, er sólar nýtur. Víða eru klettabelti í brún-
um. Undan fönnunum fellur fjöldi lækja og ótal eru þar upp-
spretturnar, svo að raki er hvarvetna nægur. Veldur það því
ásamt miklu sólfari, að ströndin er yfirleitt vel gróin og grösug.
Jarðvegur er þar meiri en víða innar með Djúpinu. Á Snæ-
íjallaströnd hafði ég bækistöð mína á Sandeyri, sem liggur ut-
arlega á ströndinni. Er gróðurlýsingin því vitanlega miðuð við
hinn nyrðri hluta strandarinnar norðan Ytra skarðs.
Neðst í hlíðum er samfellt graslendi að kalla og upp í 100 m
hæð. Þar skiptast á eftir landslagi mýrasund, valllendismóar og
brekkur. Nokkur mismunandi gróðursamlög er þar að hitta og
skal þeirra helztu getið (ég nota orðið gróðursamlag eða sam-
lag eingöngu yfir það, sem í erlendum málum kallast Associa-
tion eða Socion.)
Helztu mýrlendissamlögin eru þessi: Fyrsta samlagið er gul-
stararmýri (C. Lyngbyei-Association), hún er á sléttlendi og lítt
hallandi svæðum í hlíðinni, þar sem rennandi vatn leikur um.
Af öðrum plöntum en gulstör1) eru algengastar hálmgresi,2) þráð-
sef,3) engjarós4) og víði5)tegundir, en langmest gætir þó gulstar-
arinnar allra þessara tegunda. Annað samlagið er mýrafinnungs-
og klófífumýri (Scirpus cæspitosus — Eriophorum polystachium
Ass). Það er langalgengasta samlagið um neðanverðar hlíðarnar.
Það er á nokkuð hallandi grunni og snjór virðist liggja þar
lengur en í meðallagi. Mýrafinnungurinn0) er sýnilega ríkjandi
tegund og þekur allra plantna mestan hluta af yfirborðinu, en
klófífan7) er næstum eins algeng, en þekur miklu minna. Helztu
fylgitegundir þeirra eru hengistör8) og stinnastör.9) Þriðja sam-
1) Carex Lyngbyei. 2) Calamagrostis neglecta. 3) Juncus filiformis.
4) Potentilla palustre. 5) Salix. 6) Seirpus cæspitosus. 7) Eriophorum
polystachium. '8) Carex rariflora. 9) C. rigida.