Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1941, Síða 64

Náttúrufræðingurinn - 1941, Síða 64
158 N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN A—Ai, frá Innri-Stapa miðjum. B—Bj, frá Syðri-Stapa miðjum. D—Di, frá dökkum klettshöfða, sem liggur út að sandinum nærri miðleiðis milli. stapanna, oig E—E,, nærri miðja vegu milli Syðri-Stapa og Lambatanga. Niðurstaðan af mælingunum er í stuttu miáli þessi: Vatnið er yfirleitt mjög djúpt eftir stærð og víðast mjög aðdjúpt, einkum undir Sveifluhálsi. Megindýpið liggur eft:r vatnsbotninum endi- löngum, samhliða ihálsinum oig nærri honum. Er jþað þannig að skilja, að hlíð hans gengur niður undir vatnsflötinn óbrotin af öðru en vagli íþví eða þrepi, sem öldurótið hefir skapað. Mest dýpi í vatninu, 87,5 m, mældist út frá Syðri-Stapa, aðeins 200 m frá landi. En þar er megindýpið mjóst, því að Stapinn þrengir að því sdn megin, en frá hinu landinu gengur grunn lengra út en í mitt vatnið. Sunnan við þessia mjódd breiðist megindýpið út, og er vatnsbotninn suður þaðan nokkuð regluleg skál með jöfnu aðdýpi og þó allmiklu, allt suður undir Geithöfða. Þó verður þar um 50 m..hár hamar, er gengur suður frá Syðri-iStapa nokkuð úti í vatninu. (Sjá kortið.) Helzt dýpið furðulangt suður eftir; þannig mældist mesta dýpi á liínunni E—Ej 73 m. Norðan við syðri stap- ann ibreiðist megindýpið einnig út, og má kalla, að um ldnuna D—Di nái það landa á m.illi. Síðan þrengist það aftur um Innri- Stapa, og er þó nærri þrefalt ibreiðara þar en við Syðri-Stapa. Á ln'nunni D—Dj mældist me'sta dýpið 70 m, en á A—Aj út af Innri- Stapa, 69 m. Norður þaðan grynnist hægt og hægt, og má þó kalla, að megindýpið nái langleiðina að sandrifi því, er lokar Lambhagatjörn, og er aðdýpi mikið ibæði fná- Hellum og Lamb- haga. Frá suðvestunbakka vatnsins ganga tvö grunn allstór út í það, annað gegnt Syðri-Stapa, og hefir þess verið getið, en hitt út fró Vatnshlíð og suður frá Lambhaga. Á grunnum þessum er viðast 6—8 m dýpi og jafndjúpt mjög, en 5 m dýptarlínan liggur skammt frá landi. Á milli. grunnanna, um línuna D—Dj, er þó aðdjúpt mjög, og verður þar hyldjúpt ker, með ca 60 m dýpi, sem er áfast við megindýpi vatnsins, þó þannig, að lágur hrygg- ur verður á milli (dýpi 45 m). Kleifarvatn l'ggur þannig í lpkuðum dal og fyllir dalbotninn. Frá suðaustri ganga tvær hæðir fram í dalinn, flatlendar ofan, en vatni huldar, og eru það grunnin, sem áður getur. Dalurinn er sléttur í botn og hallalítill, en hlíðarnar brattar á báða vegu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.