Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 5
NÁTTÚRUFRÆBINGURINN
67
mynd um stærð ritsins eitir þeim. Eitt lengsta brotið er um vatnsföll
í Múlasýslum. Er það harla nákvæmt, og má kalla, að nefnd sé liver
spræna og getið rennslis þeirra. Er brot þetta 31 blaðsíða í ritum
Jónasar, og eru taldar þar uni 320 ár, en í íslandslýsingu Þorvalcls
Thoroddsens eru taldar um 60 ár á sama svæði, og ver hann til þess
fjórum blaðsíðum. Gefur þetta nokkra hugmynd um, hversu stór
og nákvæm lýsing Jónasar átti að verða.
Ef vér ætlum að skapa oss heildarmynd af náttúrufræðingnum
Jónasi Hallgrímssyni, er það furðu erfitt viðfangsefni. Rit hans eru
að vísu lítil að vöxtum, en fæst þeirra eru unnin til fulls. Langmestur
hluti þeirra eru dagbækur eða öllu Iieldur dagbókabrot, sem skrif-
uð eru jafnóðum á ferðum lians. En Jónas var enginn eljumaður við
dagbókaskriftir, og aðeins eina dagbók hefir hann haldið ferðina á
enda, en það var síðasta ferð hans um Austurland. Og ég býst við, að
5*