Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 8
70 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN hann varð fyrstur vísindamanna til að veita blágómunni athygli sem sjálfstæðri tegund. Grasafræðin er sú grein náttúrufræðinnar, sem Jónas hefir minnst sinnt. Varla er hægt að segja, að nokkurs staðar sé minnzt á gróður í dagbókum hans, og á grasatali lians, sem geym/t hefir í handriti, er sáralítið að græða. Jónas liafði mikinn hug á að efla þekkingu almennings á náttúru- fræði og skrifaði hann nokkrar greinar og þýddi í Fjölni. Á meðan hann dvaldi í Reykjavík, á rannsóknarárum sínum, reyndi iiann mikið til að koma þar á fót náttúrugripasafni, og hafði liann fengið til þess nokkra gripi. Var honum og mikið kappsmál, að kennsla í náttúrufræði yrði tekin upp í latínuskólanum, er hann flyttist ti! Reykjavíkur, og hafði hann augastað á því starfi. Þegar vér þannig lítum yfir hinn sýnilega árangur af náttúru- fræðistörfum Jónasar Hallgrímssonar, er að vísu ekki hægt að segja, að hann sé mikill, enda tók Jónas mestan hlut hans með sér í gröfina. Hefir það og orðið til þess, að ýmsir þeir, er um liann hafa ritað, hafa brugðið honum um óstaðfestu og stefnuleysi í þessum efnum, og jafnvel kenna sumir leti. Þorvaldur Thoroddsen, senr annars ritar af skilningi um rannsóknarstörf Jónasar, talar um hviklyndi lians í þessurn efnum, sem eins og hann segir: „iiefir lík- lega meðfram stafað af líkamlegum lasleika, en annars hefir það verið talið þjóðareinkenni, íslenzkt, að áformin eru í fyrstu stór og glæsi- leg, en framkvæmdin minni, þegar á á að herða.“ Hannes Hafstein vill hins vegar rekja afkastaleysi Jónasar á þessu sviði til þess, að „skálddísin hafi verið orðin afbrýðisöm“. Það er að vísu satt, að áform Jónasar eru stór, en afköstin ekki að sama skapi, enda má segja, að ótal i 11 rök hafi lagzt þar á eitt um að láta sem minnst verða úr náttúrufræðistarfi hans og fela það gleymskunni. Fyrst má geta þess, að honum entist ekki aldur til að ljúka nokkru heilu verki, nema fáeinum stuttum ritgerðum. En það vita þeir gjörst, er reyna, að venjulega þarf miklu lengri tíma til að undir- búa slík rit, en að koma þeim á pappírinn að lokum. Fyrsta rannsóknarferð Jónasar sýndi ljóslega, að hann gat verið afkastamaður,- en eftir að lokið er undirbúningi undir síðari ferð- irnar, leggst allt á eitt nreð að draga úr starfi hans. Styrkur sá, er hann fékk til rannsóknanna, var lengstunr af svo skornum skammti, að hann hlaut að sníða ferðirnar eftir honum. En ekki er þó víst, að féleysið hefði valdið svo miklu tjóni, ef heilsu-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.