Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 12
74 NÁTTÚRUJt'RÆÐlNGURINN vætu né mikinn þurrk. Þær eru margbreytilegastar og mest út- breiddar. (Meginhluti ísl. gróðursins). 4. Þurrkgráður, þola mjög vel þurrk og eru búnar margs konar vörnum gegn oi: mikilli útgufun (kaktusar, helluhnoðri o. fl.) Raki og hiti valda mestu um sköpun gróðurbelta jarðarinnar og vatnið ræður mestu innan gróðurbeltanna. Kn ekki má samt gleyma þátttöku loftsins. Efni þess er að vísu svipað um alla jörð, en loftstraumarnir eða vindarnir eru voldugur aðili. Stöðugir vindar beygja tré og annan hávaxinn gróður, eða knýja hann jafnvel að jörðu og slíta stundum blöðin af og merja þau. Gróðurinn verður lágur í vindhéruðum. Vindarnir flytja líka raka og hafa þannig mikil áhrif. J’urrir vindar aftur á móti Valda mikilli útgufun frá gróðrinum. Veldur slíkt iðulega ofþornun og visnun. Má víða sjá þess dæmi, t. d. er ungir trjásprotar ofþorna á vorin. Ráða vindarnir mjög miklti um gróðurfar hér á íslandi. l>að væri miklu gróðursælla, ef skjól væri nóg, þótt hitastigið Iiéldist óbreytt. Birtan, ekki sízt lengd dags og nætur, hefir einnig áhrif á gróður- inn. Má skipta honum í Iangdegisgróður, skammdegisgróður og ó- næman eða lítt næman gróður fyrir daglengdinni. Langdegisgróð- urinn þarf langan dag, helzt lengri en 14 tíma, til að ná eðlilegum þroska. Er langdegisgróður algengastur hér á íslandi. Skammdegis- gróðurinn vill liafa daginn 12 tírna eða styttri. Þannig er það í hita- beltinu og þar í grennd. Flestir hér þekkja jólakaktusinn, senr blómg- ast um jólaleytið, af því að Jrá er birtutíminn honum heppilegastur. Allar jurtir þurfa að vísu eitthvað ákveðið birtumagn samanlagt, til að þrífast vel, en Jrað' er ekki sama, hvernig birtutímanum er skipt niður. Nefnd skilyrði, hili, vatn, vinclar og birt.a, ráða mestu uin út- breiðslu tegundanna í stórum dráttum. En um hina nákvæmari skiptingu á takmörkuðu svæði ræður líka jarðvegurinn mjög miklu, oft x sambandi við rakann. Útlit eða vaxtarmót gróðuisins skapar svip gróðurlandanna. Ex hágróðri venjulega skipt í tvo stóra flokka (eftir vaxtarmóti) viði og jurlir. Viðirnir lifa lengi og hafa liarða, trékennda stöngla (tré og runnar). Jurtunum er efiir æfiskeiði skipt í fjölærar, tvíærar og ein- ærar jurtir. Er hér mest af fjölærum og tvíærum. Einnig er teg- undunum skipt eftir lífmyndum, miðað við hvernig þær búast við vetrinum eða þunkatímanum (þ. e. a. s. hvar brumin eru geymd og varin). Eru helztu lífmyndirnar loftplöntur, yfirborðsjurtir, svarð- arjurtir, jarðjurtir, vatna- og votlendisgróður og einærar jurtir.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.