Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 19

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 81 litinu sést, að ekki getur verið nema um tvennt að ræða. Annað hvort ber að telja það til heimskautalandanna eða tempraða beltisins. Um þetta eru skoðanir fræðimanna allmjög skiptar. Hallast margir að því, að telja það til heimskautalandanna. Nú er það svo, að hitastigið er við takmörkin. Hvað gróðri viðvíkur, þá var vafalaust nrikill hluti láglendisins vaxinn skógi áður fyrr. Birkiskógarnir taka mikl- um framförum, ef þeir eru girtir, og reynslan hefir sannað, að hér er hægt að rækta tré. Má telja öruggt, að ef skógarnir hefðu fengið að vaxa í friði, þá væri meiri hluti alls láglendis vaxinn skógi enn þann dag j dag. — I öðru lagi má nefna það atriði, að freðmýrar eru ekki til hér á landi á láglendi. Klakann leysir jafnan úr mýrunum á vorin. Hið eina hérlendis, sem skylt má telja freðmýrunum (túndr- unum) eru flárnar á hálendinti. I þessum hálendismýrum eru sums staðar þúfur, sem „rústir“ nefnast. Þær minna talsvert á risaþúfur freðmýranna og eiga sammerkt við þær að því leyti, að í þeim er oftast klaki allt sumarið. Bendir jjetta ásarnt ýmsu í gróðrinum til Jjess, að láglendi Islands beri að telja til tempraða beltisins, en mikið af hálendinu sé reglulegt heimskautaland. Island liggur áreiðanlega á takmörkum jjessara gróðurbelta og tilheyrir hvorugu algerlega. Eitt af því, sem fyrst er nefnt, Jjegar íslandi er skipaður sess í lieim- skautalöndunum, eru þúfurnar. Þær þekkjast t. d. ekki í Danmörku og Noregi á neinn svipaðan hátt og hér á landi. En freðmýrar heim- skautalandanna eru líka Jjýfðar. Er þetta oft talin sönnun þess að ís- land sé heimskautaland. í fljótu bragði virðist þetta hafa nokkuð við að styðjast. Þýfi, Jj. e. þúfur og skorningar, einkenna víða á báðum stöðum. Bæði freðmýraþúfurnar og hinar íslenzku, eru oft berar í kollinn eða með flagi móti veistu vindaátt. Runnar vaxa oft í lilíðum þúfnanna á báðum stöðum, og mikill gróður í skorningunum. Is- lenzku þúfurnar eru yfirleitt miklu minni heldur en freðmýraþúf- urnar og klakalausar á sumrum á láglendi. Risaþúfur eru sjaldgæfar (Þorvaldur Thoroddsen nefnir um meters háar þúfur, 10 m. breiðar og 15—20 m. á lengd). Takmörk mýra og holtajaðarinn er oft mjög stórþýfður, Jjótt ekki séu þar að jafnaði neinar risaþúfur. (Þorvaldur Thoroddsen o. fl. nefna sérstaklega stórar Jjúfur í Eystri-Pollum, Bakkafirði, við Mývatn o. v.) Smáþýfið, bæði á votlendi og þurrlendi, er mjög einkennandi fyrir ísland, Jjað er mjög ólíkt sléttlendinu á Norðurlöndum og einnig verulega frábrugðið risaþúfum lreðmýr- anna. Á kollum risaþúfnanna eru fléttur mjög algengar, en miklu minna um þær á íslenzkum láglendisþúfum. Mosi ríkir oft í risaþúf- um freðmýranna. í íslenzku mýrlendi eru tvenns konar þúfur. Þar 6

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.