Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 30

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 30
92 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Steinþór Sigurðsson: / Yfirlitsrannsókn Islands Árið 1939 má segja, að lokið hali verið landmælingu íslands, enda þótt enn hafi tekið nokkur ár að vinna úr frunnnælingunum og full- gera uppdrættina til prentunar. Tilgangur þessara mælinga var sá, að gera landfræðilegan uppdrátt af landinu (tópógrafiskur uppdrátt- ur). Frumuppdrættirnir voru gerðir í mælikvörðum 1:50000 til 1:200000 og einstiik svæði voru mæld í stærri mælikvarða. Upp- drættir þessir sýna aðaldrætti landslagsins og geta myndað grundvöll undir hvers konar yfirlitsrannsóknir á landinu. Að mælingum þessum var unnið 24 sumur. Hvert sumar unnu margir flokkar mælingamanna. Mun fara nærri, að gera ráð fyrir sjö flokkum að meðaltali, en í hverjum llokki var að jafnaði einn mæl- ingamaður með tveim aðstoðarmönnum. Mælingin sjáll svarar því nálega til 150 sumra starfs eins mælingamanns með aðstoðarmönn- um. Auk mælingarinnar liggur mikið verk í undirbúningi uppdrátt- anna undir prentun. Rannsóknir á náttúru landsins, jarðfræði, jurtalífi eða dýra, er talizt geti sambærilegar landmælingunni, hafa ekki farið fram. Sam- íelldar rannsóknir hafa ekki verið gerðar stærri en svo, að æliskeið eins manns hefir nægt til þeirra. Heildaryfirlit eru því ófullkomin á liestum sviðurn og handahóf nokkuð á því, hvað rannsakað hefir \ erið og hvað útundan helir orðið. A þessu verður ekki ráðin bót nema með samtökum vísindamanna á ýmsum sviðum og með miklu fjármagni. Hins vegar verður það að tcljast skylda okkar sem menningarþjóðar, að þekkja sem ýtarlegast okkar eigið land og möguleika þá, sem það hefir upp á að bjóða. íslenzka ríkið hefir kostað landmælingarnar síðari árin. Mætti teljast eðlilegt, að ríkið kostaði á sania hátt áframhaldsrannsókn landsins. Að vísu er verki eins og landmælingunni aldrei lokið. Stöðugt verður að endurskoða uppdrætti og stöðugt koma fram kröfur um nákvæmari uppdrætti. En þetta framhaldsstarf við land- mælingarnar má ekki hindra framkvæmdir á nýjum sviðum. Rannsóknir þær, sem ég hefi í huga, þurfa að vera svo umfangs- miklar, að þær bæti að verulegu leyti við þá þekkingu, sem nú er á landinu. Rannsóknirnar mega hins vegar ekki vera okkur ofviða né

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.