Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
93
árangur þeirra koma of seint í ljós. Rannsóknir, sem tækju svipaðan
tíma og landmælingin tók, eða um 30 ár, og sem í væri lagt um þre-
falt starf á við landmælinguna, myndi fullnægja þessum skilyrðum.
Mörgum kann að finnast 30 ár of langur tími til þess að bíða eftir
heildarniðurstöðum. Verkið mætti vinna á skemmri tírna, ef mönn-
um væri fjölgað sem að |ní ynnu. En nú er ekki völ á innlendunr
mönnum, sem unnið gætu rannsóknarstarf það, sem ég hefi í huga á
skemmri tíma. Þrjátíu ára tímabil er nálægt því að vera starfsæfi eins
manns. I mörgum tilfellum myndi sami maðurinn fylgjast með rann-
sókninni á öllu landinu á sínu sviði. Fengi hann miklá reynslu og
sanrræmi yrði á milli rannsókna hinna ýmsu landshluta.
Franrkvæmd rannsóknanna hefi ég hugsað mér þannig, að verkefni
jrau, sem taka á til rannsóknar, séu nákvæmlega tiltekin og flokkuð.
Aðalflokkarnir hafa þegar verið nefndir: jarðfræði, grasafræði og
dýralíf. Hverjum jressara flokka mætti t. d. skipta í tvo hluta. Væri
einn rannsóknarmaður fyrir hverjum hluta rannsóknanna, og ynnu
jrví 6 sérfræðingar að rannsóknunum alls. Hver sérfræðingur þarf
aðstoðarmenn, og geri ég ráð fyrir jrví, að fyrst og fremst yrðu notaðir
stúdentar, sem lesa fræðigreinar jrær, er um ræðir. Útivinna fer aðal-
lega fram á sumrin, en ;i veturna er unnið úr rannsóknunum og
gengið Irá skýrslum. Rannsóknir Jressar miða ekki að úrlausnum
ákveðinna verkefna heldur scifnun ;í staðreyndum. Rannsóknirnar
verða að vera eins ópersónulegar og unnt er, og sem minnst byggðar
á skoðunum rannsakanda eða ríkjandi skoðunum vísindamanna,
sem eru breytingum undirorpnar. A þann hátt einan geta rannsókn-
irnar fengið varanlegt gildi. Því er ekki nauðsynlegt fyrir rannsak-
anda að bíða með birtingu athugana sinna, Jrar til yfirlit er fengið
ylir stór landsvæði.
ísland er rúmir 100.00 km.2 Eigi að Ijúka verkinu á 30 árum, jrarf
að meðaltali að fara yfir rúmlega 3000 km.2 á ári. Þar sem allir
flokkarnir þurfa að fara yfir allt landið, er jretta það svæði, sem hver
flokkur þarf að rannsaka að jafnaði á ári. Þetta svæði er nálega jafn-
stórt Suðurlandsundirlendinu (byggðum), tvöfalt stærra en Snæfells-
nesið og jafnstórt skaganum milli Skagal jarðar og Eyjafjarðar. Svæð-
ið er nálega fimmti hluti af Mið-íslandsuppdrættinum (sem hér er
enn ekki prentaður). Af þessu má gera sér Ijóst, að rannsókn, sem jró
er stórt lyrirtæki á okkar mælikvarða og margfalt stærri en nokkúr
hliðstæð ransókn, sem hér hefir áður verið gerð, að landmælingunni
einni undanskilinni, er þó aðeins yfirlitsrannsókn. Ef gert væri ráð
fyrir jrví, að farið væri yfir tvöfalt stærra svæði á hverju sumri í ó-