Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 34

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 34
96 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN og veru, þannig, að fylgt sé sömu áætlun fyrir allt landið og athug- anir í mismunandi héruðum því sambærilegar. Undirbúning þenn- an er aðeins hægt að gera með því að framkvæma athuganir til reynslu á nokkrum svæðum, og rannsóknir þessar látnar mynda grundvöll við undirbúning áætlunarinnar. Einnig væri að sjálfsögðu stuðst við svipaðar framkvæmdir í öðrum löndum. Ymsir telja, að uppdrættir þeir, sem fyrir liggja, séu ekki nógu fullkomnir sem undirstaða undir rannsóknir sem þessar. F.g vil sér- staklega taka það fram, að það eitt út af fyrir sig að fá nákvæmari heildaruppdrátt af landinu en nú er til, mun kosta allt að því jafn- stóra upphæð og hér er gert ráð lyrir til heildarrannsóknanna. Þurfi nákvæmari uppdrætti af vissum svæðum, yrði að framkvæma mæl- ingu á þeim, og myndi þá að líkindum vera eðlilegast að taka ljós- myndir úr lofti af þeim svæðum. Enda þótt fyrirtæki sem þetta, kunni að virðast okkur ofvaxið, þá er það, miðað við okkar tíma, ekki eins viðamikið og mæling íslands var um aldamótin, þegar hún var hafin, miðað við þann tíma. Ég tel nauðsyn á því, að undirbúningur undir rannsóknir þessar verði haf- inn sem fyrst, þannig, að fidlkomnar áætlanir geti legið fyrir á næstu árum. Að 30 til 50 árum liðnum mun það þykja jafnmikil óhæfa að eiga ekki sæmilegt heildarylirlit yl'ir náttúru landsins, eins og það nú mundi þykja, að hafa ekki sæmilegan yfirlitsuppdrátt. Vöntun á yfirlitsuppdrátum nú, myndi gera ýmsar framkvæmdir mun erfið- ari, og eins mun vöntun á heildarþekkingu á landinu, stöðugt verða tilfinnanlegri er tímar líða. En mál þetta er ekki eingöngu þekkingaratriði, það er einnig menningaratriði. Hér er verkefni, sem okkur ber að leysa sem menningarþjúð í frjálsu landi. Stein]x'>r Sigurðsson. Sveinn Þórðarson: Saga silfurbergsins Silfurberg köllum við þá, hina fögru, ljósleitu og tæru kristalla, sem kalksteinninn á stöku stað hér á landi fnrtist í. Naf'ið er fagurt, ogekki eru kristallarnir síður fagrir, en flestir höfum við Islendingar

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.