Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
105
skautunarfletirnir rétt horn sín á milli. Falli þessir geislar að nýju
inn í kristall í sömu stellingum, verður ekki um frekari klofningu
að ræða, þar eð sveiflufletirnir hafa ekkert breytzt, reglulegur geisli
í fyrri kristalli er það einnig í þeim síðari.Sé hins vegar síðari kristall-
inum snúið þannig, að hvorugur geislanna geti farið í gegnum hann
annað' hvort sem reglulegur eða óreglulegur geisli, verður það til
þess, að hvor geislanna klofnar í tvennt, þar eð hvor sveiflan leysist
upp í tvær, svo að úr verða fjórir aðgreindir geislar. Má nú telja, að
hér með sé fundin fyllilega viðunandi skýring á eðli þeirra lyrir-
brigða, sem mestri umhugsun og heilabrotum liafa valdið.
Þegar skýring er fengin á ráðgátum þeim, sem legið hafa fyrir til
rannsókna, \ iII oft svo fara, að menn íhuga hvort ekki megi notfæra
sér hin ýmsu fyrirbrigði, sem fram hala komið og skýring helir feng-
i/.t á, til hagnýtra hluta og frekari rannsókna. Varð svo og raunin á
með silfurbergið, að ekki leið á löngu, áður en mönnum hugkvæmd-
ist ýmis ráð og aðferðir, til hagnýtingar á hinum sérkennilegu eigin-
leikum þess. Kom þar aðallega til greina að breyta venjulegu ljósi í
skautað ljós, og athuga \ erkanir ýmissa efna á það.
Skautað ljós er \enjulegast franrleitt með svonefndum Nicol-
strendingum, sem kenndir eru við liöfund sinn, Bretann William
Nicol. Eru þeir búnir til á þann hátt, að silfurbergskristall er skorinn
skurðfleti til hvors endans, þannig að hvössu hornin verða 68° í stað
72° áður; síðan er lagður enn einn skurðflötur skáhallt í kristallinn,
þannig að gleiða hornið skiptist í tvennt, eitt 90° horn og eitt 22°.
Skurðfletirnir allir eru fágaðir vel þannig, að þeir halda gagnsæi
sínu að fullu, og eru nú bæði stykkin skeytt saman, og er notað til
þess sérstakt efni, Can-
ada balsam, setn mikið
er notað til þess að
skeyta saman gagnsæja
glerfleti, svo sem linsur
0. mynd: Nicol-strendingur. 1 kíkJUm °8' víðar’ Er
það viðarkvoða (harp-
ix), sem fæst af amerísku afbrigði silfurfurunnar. Falli venjulegt ljós
inn í silfurbergsmolann, eins og sýnt er á 6. mynd, klofnar hann í
tvo geisla, og brotnar reglulegi geislinn meira. Báðir lenda geislarn-
ir í Canada balsam laginu. Innfallshorn reglulega geislans er þá
orðið það stórt, að liann endurkastast við flötinn og fellur skáhallt
út úr kristallinum og er þar með úr spgunni. Óregulegi geislinn, sem
verður fyrir mikltt minna ljósbroti, sleppur hins vegar óskaddaður