Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 44

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 44
106 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í gegn, og er ljósið þar með orðið skautað. Nicol-strendingur þessi er kallaður „skautari" (polarisator). Nú má einnig lrugsa sér annan Nicol-strending fyrir aftan þann fyrri, þá sleppir sá strendingur að- eins öllu ljósi frá þeim fyrri í gegnum sig, að hann hafi sömu stell- ingu í rúminu og hann (samsíða Nicol-strendingai]). Sé þeim snúið um 90° gegn livor öðrum, þá hleypir síðari strendingurinn eiigu ljósi þess fyrri í gegnurn sig (krossstæðir Nicolar). Á þennan hátt er því hægt að fá vitneskju um skautunarflötinn, og er síðari strending- urinn nefndur „greinir“ (analysator). Sé efni látið á milli hinna tveggja Nicola, má athuga, hvort j>að hafi nokkur áhrif á skautunina. Kemur í ljós að ýmis efni hafa áhrif í þá átt að þau snúa skautunar- lieti þess ljóss, sem látið er falla í gegnum þau. Á Jietta við unr mörg lífræn efni, og má þekkja þau mörg á þessum eiginleika, sem mæla má í Jrar til gerðum mælitækjum (polarimeter). Við steinarannsóknir er einnig oft notað skautað ijós til athugunar ;i kristallagerð berg- tegunda. Eru til Jress notaðar smásjár, sem Nicolstrendingar hafa ver- ið seitir í, annar við sjóngierið, liinn neðst áður en Ijósið fellur á kristallana, sem hafa verið slípaðir næfurþunnir, svo að Jieir eru orðnir gagnsæir. Byggist rannsóknin á ]>ví, að eins og áður hefir verið tekið fram, eru flestallir kristallar gæddir þeim eiginleika, að hafa tvöfalt Ijósbrot, og liafa Jreir |>\ í svipuð álirif á skautað Ijós og silfurbergið sjáll't. Sé kristall t. d. settur á rnilli krossstæðra Nicol- strendinga, hefir hann }>ær verkanir á skautaða Ijósið, að í stað myrkurs verður meiri eða minni birtu að sjá. Með ]:>ví að snúa efri strendingnum, breytist myndin sem sést í smásjánni á margvíslegan Iiátt, og má af J>ví ráða um gerð kristallsins. Af framantöldu er auðsætt, hversu hagkvæmdar og þýðingarmiklar ransóknaraðferðir hafa skapazt við tilkomu silfurbergsins, enda helir mjög verið eftir því sótzt. Eitt fyrsta verk Þorvaldar Thorodd- sens, er hann hóf rannsóknir sínar hér á landi, var að rannsaka og kortleggja námuna í Helgustaðaíjalli við Reyðarfjörð. í ferðabók sinni lýsir bann námunni nákvæmlega, en hún var þá raunar ekki starfrækt. Hann getur )>ess, að silfurbergið sé flokkað niður í fjóra flokka eftir gæðum. Miðast flokkunin fyrst og fremst við tærleika kristallanna, stærð þeirra og lögun. Eru stóru og tæru kristallarnir langsamlega verðmætastir, enda sjaldgæfastir, annars verður ekki séð að náman hafi gefið af sér mikinn fjárhagslegan arð. Hefir jafnan langmest gætt hinna lakari og ódýrustu tegunda silfurbergsins í Jdví magni sem unnið hefir verið, og,]>að svo mjög, að nú er svo komið, að meginið ef ekki allt það silfurberg, sem unnið er, fer til Jress að

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.