Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 45

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 107 skreyta steinsteypuveggi ásamt hrafntinnu og kvarzi. Er það skoðun ýmissa jarðfræðinga, að ógætileg vinnsla silfurbergsins (sprengingar) áður fyrr, liafi valdið því, hversu mjög kristallarnir eru gallaðir, mjólkurlitir og sprungnir. Má og segja að hinu sögulega hlutverki silf urhergsins sé senn lokið. menn hafa fundið nýjar leiðir og aðferð- ir til þess að fá frarn tvöfalt ljósbrot og skautaðar ljóssveillur. Ekki skal farið út í þá sálma hér, hvernig það er gert, skal látið nægja að geta eins efnis, poloroid, sem ætla má að mikla framtíð eigi fyrir sér. Er það framleitt á kemiskan hátt, úr efni með rnjög stórum sameindum (molekulum), sem fiaf'a verið nreðhöndluð á sérstakan hátt þannig, að ljósgeisli verður skautaður við það að ganga í gegn- um það, er efni þetta haft á milli txeggja glerplatna því til varnar og stuðnings. Hefir það m. a. verið reynt í hifreiðaluktir og framgler í bifreið- um, og er það þá sett þannig í, að skautunarfletirnir í luktunum og framglerinu eru samsíða og hallast úm 45° frá lóðréttri stefnu. Sér þá hifreiðárstjóri þeirrar bifreiðar ljós sinna ljóskera hindrunar- laust, en komi hins vegar á móti honum hifreið með sama úthún- aði í Ijóskerum og framgleri, þá sér bifreiðarstjórinn ekki Ijósgeisla frá aðalljóskerum aðkomu bifreiðarinnar, þar eð skautunarflötur þess ljóss er hornréttur við skautunarföt þess Ijóss, sem framglerið hleypir í gegnum sig. A þennan hátt má koma í veg fyrir, að tvær hifreiðir, sem mætast, blindi bifreiðastjóra Itt'or annarrar með Ijós- magni sínu, en eins og kunnugt er, hefir það valdið mörgum slysum. Er ekki að efa að endurbót þéssi muni eiga mikla framtíð fyrir sér. Þá hefir og reynz.t mikil bót að því, að nota skautunarsíur (polar- isationsfilter) úr polaroid eða öðrum efnum í sambandi við ljós- myndun á hlutum með f lötum, sent mikið endurskin hafa (glerrúð- ur.vatnsfleti). Þareð endurkastaða ljósið er að meira og minna leyti skautað, má deyfa það verulega með ofangreindri síu, þannig að önnur atriði myndarinnar njóta sín miklu betur en ella. Polaroid hefir þegar verði notað til margháttaðra rannsókna, nýj- unga og endurbóta, sem áður voru bundnar við silfurbergið eða \orti óhugsandi vegna annmarka jress. Er hér enn eitt dæmi Jress, að vísindin láta sér ekki nægja að rannsaka fyrirhrigði náttúrunnar og og afla sér skilnings á jreim, heldur setja Jrau sér jafnframt Jrað tak- mark, að hagnýta þá Jrekkingu, sem fengin er og ef með Jrarf og ástæður leyfa, að skapa efni sem komið geta í stað hinna þekktu náttúrulegu efna og jafnvel tekið þeim fram á ýmsan hátt.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.