Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 3

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 3
Trausti Einarsson: Kjarnorkan og vald mannsins yfir efninu Einn af fremstu snillingum hins forngríska menningartímabils var Arkimedes, sem uppi var fyrir rúmum 2000 árum. Til lians eru raktar fjölmargar uppgötvanir í stærðfræði og skyldunr greinum, og meðal annars fann liann vogarstangarregluna. En ef til vill má segja, að það, sem sýni bezt yfirburðagáfur lians, séu þau orð, er hann lét falla, eftir því sem sagan hermir, er hann hafði fundið vogarstangar- regluna. En jrau hljóða þannig: Fáið mér stað að standa á, og ég skal bifa jörðinni. Þetta litleggst þannig, að með beitingu náttúrulög- málanna út í æsar geti maðurinn framkvæmt ótrúlegustu stórvirki, með nógu löngum járnkarli gæti einn maður hreyft jörðina, ef nógu traust undirstaða væri til utan við hana. Það má segja og er líklega sagnfræðilega rétt, að Arkimedes hafi verið fyrsti maðurinn, sem skyldi, hvað bjó í náttúruvísindunum, sá, að með uppgötvun jieirra gat maðurinn öðlazt svo að segja tak- markalaust vald yfir heiminum. Þótt Arkimedes yrði einnig fyrstur manna til þess að sjá nytsemi vísindanna, jrá varð hún fyrir honum aukaatriði, valdið var liinn sanni kjarni vísindanna. Á miðri 20. öldinni e. Kr. eru menn á ný að finna þennan sann- leika. Vísindalegar rannsóknir lágu í dái í meir en 1500 ár eftir blóma- skeið hinnar grísku menningar, og þekkingunni á lögum náttúrunn- ar hrakaði fremur en hitt. Enginn forvitnaðist um jrau, hvað þá að menn brytu heilann um orð Arkimedesar. Það var ekki fyrr en um 1600, að forvitnin vaknaði á ný. Menn fóru að fikta við pendla, horfa á hlu.ti detta ofan úr háum turni, láta kúlur velta niður hallandi borðplötu o. þ. 1. Meining slíks barna- skapar var flestum dulin. En hér voru reyndai' raunvísindin að fæð- ast. 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.