Náttúrufræðingurinn - 1947, Blaðsíða 30
172
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
löndum, þar sem loftslag er líkt og hérlendis. Er þar átt við Braya
purpurascens (R. 1>R.) liGE, sem nefna má fjallakál á íslenzku.
Nokkur eintök af henni fundum við á Vaðlaheiði nokkuð sunnan
við veginn í vestanverðu Steinsskarði 13. ágúst síðastliðið sumar í
melbarði, þar sem við vorurn að leita að vorblómum.
Fljótt á litið getur fjallakálið líkzt vorblómum (Draba), en strax
og nánar er litið á það, verður manni ljóst, að reginmunur skilur
þau að. Fjallakálið er fjölært, álíka lágvaxið og móavorblóm, laust
þýft. Rótin er gróf og dökkleit og blöðin í hvirfingu, heilrend og
mjó, stundum tungulaga, þykk og kjötkennd, hárlaus með rauðum
blæ. Stönglarnir eru blaðlausir, stutthærðir. Blómin eru lítil og
óásjáleg, bikarblöðin dökkrauð og krónublöðin rauðleit, en hvít í
toppinn. Skálpurinn er flatur, um 6—8 mm langur og um 2 mm
breiður, hvíthærður.