Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 33
Bergþór Jóhannsson:
Viðauki við flórulista af Ströndum
Til viðbótar flórulista þeim, sem birtist í 4. hefti síöasta árgangs
af Náttúrufræðingnum, hef ég tekið saman það, sem hér fer á eftir
um þær jurtir, sem við Haukur hróðir minn höfum fundið á síðast-
liðnu sumri éða haft áreiðanlegar spurnir af. Við hræður höfum ekki
haft tækifæri til ferðalaga, og því beinast athuganir okkar aðallega
að nánasta umhverfi.
Aðeins nokkrar jurtanna höfum við greint sjálfir. En í fyrra
sendum við Ingimar Óskarssyni, grasafræðing, nokkrar þurrkaðar
jurtir, og var hann svo vinsamlegur að athuga þær og greina fyrir
okkur. Og í sumar er þeir grasafræðingarnir Ingólfur Davíðsson og
Johs. Grpntved voru hér á ferðalagi, greindu jreir nokkuð fyrir okk-
ur. Og Joks í haust sendum við Ingólfi þær jurtir, sem við vorum í
nokkrum vafa um, og fóru þeir Ingimar báðir yfir þær.
Þó er ekki svo að skilja, að þessir grasafræðingar beri nokkra
ábyrgð á flórulista okkai', en þeim skulu hér með fluttar beztu þakkir
fyrir greiðvikni sína og ómetanlega aðstoð.
í hinum fyrri flórulista mínum, sem var aðeins þurr upptalning,
voru nokkrar sjaldgæfar plöntur. En hér skal þeirra getið nokkru
nánar í greinarlok, svo að auðveldara verði að finna Jrær síðar.
/. Þúsundblaðarós (Athyrium. alpestre). Allvíða í Goðdal, Aspar-
, víkurdal og Reykjarfirði.
2. Mýreljting (Equisetum palustre). Algeng.
3. Þráðnykra (Potamogeton filiformis). Á nokkrum stöðum í
grunnum, kyrrstæðum lækjarpollum.
4. Flagasef (Juncus biglumis). Algengt.
5. Stinnasef (]. squarrosus). Vex i þurrum eða hálfdeigum jarð-
vegi innan um finnung og annan harðbalagróður. Þýfið.